Warning: realpath(): open_basedir restriction in effect. File(/www/wwwroot) is not within the allowed path(s): (/www/wwwroot/lindaben.is/:/tmp/) in /www/wwwroot/lindaben.is/wp-content/plugins/wp-file-manager/classes/backup-storage.php on line 119

Warning: realpath(): open_basedir restriction in effect. File(/www) is not within the allowed path(s): (/www/wwwroot/lindaben.is/:/tmp/) in /www/wwwroot/lindaben.is/wp-content/plugins/wp-file-manager/classes/backup-storage.php on line 119

Warning: realpath(): open_basedir restriction in effect. File(/) is not within the allowed path(s): (/www/wwwroot/lindaben.is/:/tmp/) in /www/wwwroot/lindaben.is/wp-content/plugins/wp-file-manager/classes/backup-storage.php on line 119
Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostaglassúr - Linda Ben

Linda Ben

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostaglassúr

Recipe by
3 klst og 30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostaglassúr

Ef það er ein uppskrift sem hefur verið hvað vinsælust hér á síðunni í gegnum árin þá eru það kanilsnúðarnir mínir, svo mér fannst tilvalið að taka gömlu góðu kanilsnúðauppskriftina mína og gera eitthvað aðeins öðruvísi úr henni. Úr varð þessi risastóri, mjúki kanilsnúður sem er bakaður eins og kaka og toppaður með silkimjúku rjómaostaglassúri 😍

Í deigið nota ég mjólkina frá Örnu sem er nú komin í glænýjar og einstaklega fallegar umbúðir. Samhliða nýja útlitinu hafa mjólkurtegundirnar fengið ný heiti – í stað nýmjólkur og léttmjólkur er nú einfaldlega Blá mjólk með 4% fitu og Gul mjólk með 1,5% fitu. Báðar eru án laktósa og framleiddar í Bolungarvík. Umbúðirnar eru litríkar og skýrar svo það er auðvelt að þekkja mjólkina í kælinum. 💙💛

Kanilsnúðakakan er gerð úr sama mjúka gerdeiginu og þið þekkið úr kanilsnúðunum mínum, með ríkulegri kanilfyllingu á milli laganna. Í stað þess að gera marga litla snúða er deiginu rúllað saman í einn stóran snúð sem verður ótrúlega fallegur þegar hann er skorinn. Rjómaostaglassúrið yfir toppar svo herlegheitin, þessi er algjört draumakaffimeðlæti.

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

 Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostaglassúr

  • 7 g þurrger
  • 120 ml volgt vatn
  • 120 ml volg gul eða blá mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • ½ dl sykur
  • 80 g brætt smjör
  • 1 tsk salt
  • 1 egg
  • 450 g hveiti

Fylling

  • 120 g mjúkt smjör
  • 2 dl sykur
  • 2 msk kanill

Rjómaostaglassúr

  • 50 g smjör
  • 150 g flórsykur
  • ½ tsk vanilludropar
  • 100 g rjómaostur

Aðferð

  1. Setjið volgt vatn, volga mjólk og þurrger í litla skál. Hrærið létt saman og látið standa í nokkrar mínútur.
  2. Setjið sykur, brætt smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
  3. Bætið u.þ.b. 400 g af hveitinu út í ásamt gerblöndunni og hnoðið þar til deigið hefur samlagast vel. Deigið á að vera örlítið klístrað. Ef það er mjög blautt bætið þá restinni af hveitinu saman við eftir þörfum.
  4. Leggið hreint viskustykki yfir skálina og látið deigið hefast í 1–1½ klst., eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.
  5. Stráið svolitlu hveiti á borðið og fletjið deigið út í u.þ.b. 20 × 40 cm ferhyrning.
  6. Blandið mjúku smjöri, sykri og kanil saman í skál. Smyrjið fyllingunni jafnt yfir deigið.
  7. Skerið deigið langsum í u.þ.b. 6 cm breiðar lengjur. Rúllið fyrstu lengjunni upp eins og venjulegum kanilsnúð. Leggið endann á næstu lengju við endann á snúðnum og haldið áfram að rúlla. Þegar snúðurinn er orðinn stór og þungur, eftir u.þ.b. fjórar lengjur, setjið hann í smurt 23 cm smelluform. Vefjið afganginum af lengjunum varlega utan um snúðinn þar til allt deigið hefur verið notað.
  8. Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðinn hefast í u.þ.b. 30 mínútur.
  9. Hitið ofninn í 175°C, undir- og yfirhita.
  10. Bakið snúðinn í 35–40 mínútur, eða þar til hann er fallega gullinbrúnn og bakaður í gegn. Látið kólna aðeins.
  11. Útbúið glassúrið á meðan. Bræðið smjörið í litlum potti, takið af hitanum og hrærið flórsykrinum saman við.
  12. Bætið vanilludropum og rjómaosti út í og hrærið þar til glassúrið er slétt.
  13. Smyrjið rjómaostaglassúrnum yfir kanilsnúðakökuna og berið fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Stór mjúk kanilsnúðakaka með rjómaostakremi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5