Stór súkkulabitakaka með mjúkri karamellu miðju og er borin fram með ís.
Súkkulaðibitakakan er í bökuð í pönnu sem gerir endana og botninn á kökunni extra chewie og djúsí, svolítið eins og endar á pönnupizzu. Ekki örvænta þó þú eigir ekki pönnu sem má fara inn í ofn, það er í góðu lagi að baka hana í kökuformi ❤️
Ef það má flokka einhverja köku sem djúsí þá fer þessi kaka efst á lista!
Hún er hlaðin súkkulaðibitum svo þessi skilur engan súkkulaðiaðdáandann eftir svikinn.
Stór súkkulabitakaka með mjúkri karamellu miðju
- 220 g mjúkt smjör
- 2 dl sykur
- 1 dl púðursykur
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 1 ½ tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- 6 dl hveiti
- 250 g súkkulaði
- 100 g rjómakaramellur
- ½ dl rjómi
Aðferð
Hægt er að sjá aðferðina sem highligts myndband á Instagraminu mínu Linda Ben.
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C og undir+yfir hita.
- Hrærið smjörið, sykurinn og púðursykurinn vel saman.
- Bætið eggjunum út í, eitt í einu og hrærið vel.
- Bætið vanilludropunum saman við og hrærið vel.
- Bætið því næst lyftidufti, salti og hveitinu út í og blandið varlega saman.
- Skerið súkkulaðið niður ef þið notið súkkulaðiplötur og bætið því út í og hrærið þar til allt hefur blandast saman.
- Smyrjið 20 cm formið vel með smjöri, setjið helminginn af deiginu í formið.
- Setjið karamellurnar og rjómann í pott og bræðið saman. Hellið yfir deigið í forminu og setjið restina af deiginu yfir. Bakið inn í ofni þar til kakan verður gullin brún eða í u.þ.b. 20-25 mín.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben