Linda Ben

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Þetta súkkulaði- og hnetusmjörsgranóla er alveg ómótstæðilegt! Stökkt granóla með crunchy hnetusmjöri, kókos og kanil sem er toppað með súkkulaðidropum á meðan það er enn volgt. Súkkulaðið bráðnar þá örlítið utan um granólað og útkoman verður svo góð.

Granólað er ótrúlega einfalt að útbúa og mér finnst það fullkomið ofan á skyr eða jógúrt, með mjólk eða einfaldlega eitt og sér þegar mann langar í eitthvað gott. Hnetusmjörið gefur því ríkulegt bragð og hjálpar líka til við að mynda þessa stóru, stökku granólabita sem eru alltaf langbestir 😍

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

Súkkulaði og hnetusmjörs granóla

  • 100 g hunang
  • 60 g kókosolía
  • 1 tsk vanilludropar
  • 170 g Whole Earth crunchy hnetusmjör
  • 400 g hafrar
  • 1 tsk kanill
  • 100 g kókosflögur
  • 75 g súkkulaðidropar

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 170°C, undir- og yfirhita.
  2. Setjið hunang, kókosolíu, vanilludropa og hnetusmjör í pott og hitið varlega þar til allt hefur bráðnað saman. Passið að blandan sjóði ekki.
  3. Setjið hafra, kanil og kókosflögur í skál og blandið saman.
  4. Hellið hnetusmjörsblöndunni út í og blandið vel saman.
  5. Dreifið blöndunni á smjörpappírsklædda ofnplötu og pressið hana vel niður. Bakið í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til granólað er farið að gyllast.
  6. Dreifið súkkulaðidropunum yfir á meðan granólað er enn volgt svo þeir bráðni örlítið. Leyfið granólinu að kólna alveg áður en það er brotið upp í bita. Þannig blandast bráðna súkkulaðið skemmtilega saman við granólað.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5