Linda Ben

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Ef þið eruð að leita að eftirrétti sem vekur bæði athygli og aðdáun á veisluborðinu, þá er þessi pavlova algjör draumur!

Stökk að utan, mjúk og seig að innan með silkimjúku súkkulaðikremi og stökkum Bíókroppi ofan á. Léttur marengsinn og loftkennt kremið passa einstaklega vel með stökku Bíókropps kúlunum og úr verður eftirréttur sem bæði lítur glæsilega út og bragðast enn betur.

Þetta er fullkomin kaka fyrir afmæli, matarboð eða þegar ykkur langar einfaldlega að gera aðeins meira úr helginni. Hún er falleg á borðinu, ótrúlega bragðgóð og yfirleitt fyrsta kakan sem klárast. 😍🍫

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

  • 3 eggjahvítur
  • 2 dl sykur
  • 1 tsk kornsterkja (maizenamjöl)
  • 1/8 tsk cream of tartar
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 tsk hvítvínsedik eða hvítt borðedik

Súkkulaði fylling

  • 300 ml rjómi
  • 100 g suðusúkkulaði
  • 200 g Bíókropp

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 120ºC, undir og yfir hita.
  2. Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina ásamt cream of tartar og notið þeytarann.
  3. Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.
  4. Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 msk af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).
  5. Blandið saman vanilludropum og edikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mín lengur.
  6. Setjið smjörpappír á ofnplötu, hellið marengsnum á smjörpappírinn og mótið u.þ.b. 22 cm breiða köku.
  7. Bakið í 50-60 mín, slökkvið svo á ofninum en ekki opna ofninn. Látið kökuna kólna með ofninum. Takið út þegar ofninn hefur kólnað fullkomlega.
  8. Bræðið súkkulaði með 50 ml rjóma í potti og kælið svo blönduna að stofuhita.
  9. Þeytið 250 ml rjóma þar til hann byrjar að þykkna og hellið þá súkkulaðinu varlega út í rjómann á meðan þið þeytið. Þeytið þar til rjóminn er full þeyttur
  10. Saxið helminginn af Bíiókroppinu gróft niður og blandið saman við rjómann og setjið hann svo ofan á kökuna.
  11. Setjið það sem eftir er af Bíókroppinu yfir kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Súkkulaði pavlova með Bíókroppi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5