Ef þið eruð að leita að dásamlegri súkkulaðiköku sem þið fáið endalaust af hrósum fyrir og fyrirspurnir um uppskrift, þá er þessi fyrir ykkur!
Kakan er einstaklega mjúk og safarík en það sem gerir hana svo sérstaka er silkimjúka rjómasúkkulaðikremið. Það er búið til úr alvöru rjómasúkkulaði, rjóma og smjöri sem gefur ótrúlega mjúka áferð og mjúkt súkkulaðibragð.
Þetta er svona kaka sem hentar við öll tilefni. Afmæli, veislur eða þegar mann langar einfaldlega að baka eitthvað sem vekur bæði aðdáun og löngun í annan bita. Hún er falleg, einföld og algjör draumur fyrir alla súkkulaðiunnendur.
Gott ráð er að byrja daginn áður á því að bræða saman súkkulaðið og rjóma svo það sé búið að stirðna vel áður en kremið er útbúið.








Súkkulaðikaka með alvöru rjómasúkkulaðikremi
- Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda Linda Ben
- 3 egg
- 1 dl vatn
- 1 1/2 dl bragðlítil olía
- Pam baking cushion sprey
- Brómber eða annað til að skreyta kökuna.
Alvöru rjómasúkkulaðikrem
- 300 g rjómasúkkulaði
- 3 dl rjómi
- 100 g mjúkt smjör
Aðferð:
- Byrjið á því að undirbúa kremið með því að bræða saman rjómasúkkulaði og rjóma í potti, hellið blöndunni í skál og geymið inn í ísskáp í a.m.k. 4 klst eða þar til blandan hefur alveg stirðnað.
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið súkkulaðiþurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu og vatni, hrærið þar til orðið að mjúku deigi.
- Smyrjið tvö 20 cm smelluform vel með Pam baking cushion þar til þau verða alveg hvít. Skiptið súkkulaðikökudeiginu á milli formanna og bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kælið kökurnar og klárið að útbúið kremið á meðan.
- Setjið súkkulaðiblönduna í hrærivélaskál og þeytið þar til létt og silkimjúkt. Skerið mjúka smjörið í bita og bætið því út í súkkulaðiblönduna, þeytið saman við.
- Setjið fyrsta kökubotninn á kökudisk. Sprautið kökukremi á botninn og sléttið úr. Leggið hinn kökubotninn á og smyrjið kreminu yfir hann og á hliðar kökunnar.
- Skreytið með brómberjum eða öðru því sem hugurinn girnist.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












