Linda Ben

Súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum

Recipe by
2 klst og 30 mín
| Servings: 4-5 manns

Þessi súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum er alveg svakalega góð. Hún er rík af dökku súkkulaðibragði og ristuðum kasjúhnetum.

Hún inniheldur engan viðbættan sykur fyrir utan þann sem er að finna í dökka súkkulaðinu. Súkkulaðimúsin inniheldur engar mjólkurvörur og engin egg, þess vegna er hentar hún fyrir þá sem eru með ofnæmi og fyrir þá sem eru vegan.

Súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum

Súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben Fylgistu með á Instagram! Fylgstu með á Tiktok! Njótið vel! Ykkar Súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum

Súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum

Súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum

  • 200 g 70% Síríus súkkulaði
  • 2 msk kókosolía
  • 1 dós kókosmjólk
  • 150 g kasjúhnetur
  • 1/8 tsk salt
  • Hindber

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið kasjúhneturnar á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið þær inn í ofninum í u.þ.b. 8 – 10 mín eða þar til þær eru byrjaðar að brúnast.
  3. Myljið allar nema u.þ.b. 10 kasjúhnetur þar til þær eru orðar að mest megnis fínu dufti.
  4. Skerið súkkulaðið smátt niður og setjið í skál ásamt kókosolíu.
  5. Hitið kókosmjólkina vel í potti þar til byrjar að rjúka upp úr henni, látið ekki sjóða (ef hún byrjar að sjóða þá þarf að kæla hana svolítið aftur áður en henni er hellt yfir súkkulaðið). Hellið kókosmjólkinni yfir súkkulaðið og kókosolíuna og hrærið þar til bráðnað saman.
  6. Bætið muldu kasjúhnetunum og saltinu út í súkkulaðiblönduna, hrærið saman.
  7. Setjið blönduna inn í ísskáp og kælið í u.þ.b. 2 klst eða þar til hún er orðin þykk. Setjið í sprautupoka og sprautið músinni í glös, skreytið með hindberjum og heilum ristuðum kasjúhnetum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Súkkulaðimús með ristuðum kasjúhnetum

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5