Linda Ben

Sveppa og timjansósa

Recipe by
20 mín
Cook: 4-5 manns

Sveppa og timjansósa

Það er eitthvað svo „comforting“ við góða heimagerða sósu, svona sósu sem maður vill hella yfir kartöflur, kjöt og eiginlega allt á disknum.

Þessi sveppa og timjansósa er rík, bragðmikil og með fullkomnu jafnvægi milli djúps kraftbragðs, mildrar sætu og ferskra kryddjurta. Laukur og sveppir eru steiktir hægt upp úr smjöri þar til þeir verða mjúkir og karamellukenndir áður en dijon sinnep, rifsberjasulta og ferskt timjan gefa sósunni extra dýpt og þetta klassíska „sunnudagssteikar“ bragð.

Útkoman er silkimjúk og ótrúlega góð sósa sem passar fullkomlega með svínakjöti, nautakjöti, kjúklingi eða jafnvel ofnbökuðum kartöflum. Þetta er svona uppskrift sem lætur allt bragðast aðeins meira heimilislegt og „næs“.

Soðsósa með timjan og sveppum

Sveppa og timjansósa

  • 1/2 laukur
  • 100 g sveppir
  • 1-2 msk smjör
  • 500 ml vatn
  • 2 stk svínakraftar
  • U.þ.b. 1 msk dijon sinnep
  • U.þ.b. 1 msk rifsberjasulta
  • U.þ.b. 1 msk ferskt timjan
  • Salt og pipar
  • Sósuþykkir

Aðferð:

  1. Steikið smátt saxaðan lauk upp úr 1 msk smjöri. Skerið sveppina og bætið út í pottinn ásamt meira smjöri. Steikið þar til mjúkir og góðir í gegn.
  2. Bætið vatninu og svínakraftinum út í pottinn, ásamt dijon sinnepi, sultu, fersku timjan salti og pipar. Gott er að byrja á að setja aðeins minna, leyfa sósunni aðeins að malla og bæta svo við meira ef manni finnst vanta.
  3. Bætið við sósuþykki u.þ.b. 1 msk og látið suðuna koma upp, setjið meira ef þarf en passið að láta suðuna alltaf koma upp á milli þess sem þið setjið meira.

Soðsósa með timjan og sveppum

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5