Linda Ben

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Recipe by
30 mín
| Servings: 16 kökur

Þegar maður heldur að sykurpúðasmákökurnar geti ekki orðið betri, þá kemur þessi uppskrift! 😍🍪

Dásamlega mjúkar og seigar sykurpúðasmákökur með fallegum, léttum marengstoppi sem fær örlítinn gylltan lit í ofninum. Samsetningin er alveg ómótstæðileg! Ljúffengar smákökur með bráðnum sykurpúðum og sætum marengs sem gerir þær enn meira djúsí og girnilegar.

Ég elska að prófa eitthvað nýtt með smákökudeigunum mínum og sýna ykkur hvað það er hægt að gera margt skemmtilegt úr þeim, þó svo að hefðbundnu smákökurnar standi auðvitað alltaf fyrir sínu!

Það besta er að sykurpúðasmákökudeigið mitt fæst tilbúið í Krónunni, svo það er ótrúlega einfalt að útbúa þessar fallegu smákökur. Þær eru fullkomnar í jólabaksturinn, á kökudiskinn í næsta aðventukaffi eða bara þegar ykkur langar að gera eitthvað extra gott.

Ég mæli svo sannarlega með að þið prófið þessar! ❤️

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

Sykurpúðasmákökur með marengstoppi

  • Sykurpúðasmákökudeig
  • 2 egg
  • 130 g sykur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofnium og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið eggjahvítur, sykur, cream of tartar og salt í skál, þeytið þar til nær stífum toppum.
  3. Skiptið smákökudeiginu í 16 hluta og rúllið upp í kúlur, þrýstið kúlunum svolítið niður til að fleta þær smá út.
  4. Setjið marengsdeigið í sprautupoka og sprautið á hverja smáköku.
  5. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 15 mín eða þar til marengsinn er byrjaður að taka örlítinn lit.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5