Sýrður rauðlaukur er eitt af því sem er svo einfalt að útbúa en gerir ótrúlega mikið fyrir alls konar rétti. Hann er dásamlega góður, ferskur og örlítið sætur, með fallegan bleikan lit sem gerir matinn enn girnilegri.
Það tekur aðeins nokkrar mínútur að útbúa hann og svo sér hann nánast um sig sjálfur. Sýrður rauðlaukur passar einstaklega vel í vefjur, hamborgara, samlokur, taco og salöt, eða hreinlega með hverju sem þarf smá ferskleika og gott bragð.
Ég mæli með að eiga alltaf eina krukku tilbúna í ísskápnum!
Sýrður rauðlaukur
- 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar (gott að nota mandólín ef þið eigið slíkt
- 1 dl eplaedik
- 1 msk. sykur
- 2 dl heitt vatn
Aðferð:
- Skerið rauðlaukinn í mjög þunnar sneiðar og setjið í hreina krukku.
- Blandið eplaediki, sykri og heitu vatni saman og hellið yfir laukinn.
- Látið kólna og setjið síðan í ísskáp í a.m.k. 1 klukkustund.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:



