Þessi brownie er einstaklega ljúffeng! Hún er extra blaut og þétt en það besta er að hún er alls ekki óholl. Það er merkilega lítill sykur í uppskriftinni en það er samt ekki hægt að finna það á bragðinu. Kakan er glútein laus en hún inniheldur möndlumjöl í staðin fyrir hvítt hveiti.
Þessi er fullkomin í helgarbaksturinn ef þú spyrð mig!
Þétt og blaut brownie
- 175 g dökkt súkkulaði
- 60 g smjör/smjörlíki
- 1 ½ dl sykur
- 350 g Kaffi og súkkulaði grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum (ein full dós og 3/4 af annari)
- 2 tsk vanilludropar
- 4 egg
- 1 ¼ dl möndlumjöl
- 1 ¼ dl kakó
- ½ tsk sjávarsalt
Krem
- 200 g dökkt súkkulaði
- 2 dl rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
Aðferð:
- Stillið ofninn á 175°C, undir og yfir hita.
- Bræðið saman súkkulaðið og smjörið yfir vatnsbaði eða inn í örbylgju og blandið saman saman. Bætið sykrinum saman við ásamt gríska jógúrtinu og vanilludropunum, blandið saman. Setjið eitt egg út í í einu og hrærið á milli.
- Blandið saman möndlumjöli, kakóinu og sjávarsalti í aðra skál og bætið því svo saman við súkkulaðiblönduna.
- Smyrjið 25×25 form og hellið deiginu í formið. Bakið inn í ofni í 30-40 mín eða þar til endarnir eru byrjaðir að losna frá hliðum formsins.
- Á meðan kakan er inn í ofninum búið þá til kremið. Hitið rjóma í potti þar til hann er nánast byrjaður að sjóða. Setjið súkkulaðið í skál og hellið heitum rjómanum yfir súkkulaðið, hrærið saman þar til krem myndast.
- Takið kökuna úr forminu og leyfið henni að kólna á grind, hellið kreminu yfir. Skerið kökuna svo í bita.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben