Linda Ben

Þeytt skyrsmjör

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Þetta þeytta skyrsmjör er alveg dásamlega gott og ég er eiginlega pínu obsessed af því! 😍

Það er silkimjúkt, létt og ótrúlega bragðgott. Bragðið minnir helst á rjómaost, en mér finnst það ennþá betra!

Skyrsmjörið er sérstaklega gott ofan á nýristað brauð og það besta er að það helst mjúkt og auðvelt að smyrja því á brauðið, jafnvel þótt það hafi verið geymt í ísskápnum. Skyrið gefur smjörinu dásamlega ferskt bragð og bætir við próteini, sem er skemmtilegur bónus.

Ég nota hreina skyrið frá Örnu Mjólkurvörum í uppskriftina, en það er einmitt komið í nýjar og stórglæsilegar umbúðir! Ég er svo ótrúlega ánægð með nýja útlitið og finnst það hafa heppnast einstaklega vel.

Þetta er ein af þessum einföldu uppskriftum sem maður prófar einu sinni og vill svo alltaf eiga tilbúna í ísskápnum!

Þeytt skyrsmjör

Þeytt skyrsmjör

Þeytt skyrsmjör

Þeytt skyrsmjör

Þeytt skyrsmjör

Þeytt skyrsmjör

  • 100 g mjúkt smjör eða smjörlíki
  • 1 dl Arna skyr, hreint, frá Örnu Mjólkurvörum – við stofuhita
  • 1 tsk hlynsíróp
  • Klípa salt

Aðferð:

  1. Setjið smjör í hrærivél og þeytið þar til mjúkt.
  2. Bætið skyrinu út í hrærivélina og þeytið þar til samlagað. Gott að skafa niður meðfram hliðum inn á milli.
  3. Bætið hlynsírópinu og salti saman við og þeytið áfram.
  4. Setjið í fallega skál og bætið við meira salti ef þið viljið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Þeytt skyrsmjör

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5