Linda Ben

Þeyttur rjómaostur með stökku beikoni, pekanhnetum og heitu hunangi

Þessi dásamlega góði rjómaostabakki er algjör veislumatur og fullkominn til að bera fram þegar von er á góðum gestum! 😍

Philadelphia rjómaosturinn er þeyttur með sýrðum rjóma þar til hann verður einstaklega léttur, mjúkur og silkimjúkur. Ofan á kemur svo stökksteikt beikon, ristaðar pekanhnetur og heitt hunang með örlitlum chili sem gefur dásamlegt jafnvægi á milli sætu, seltu og örlítils hita. Samsetningin er alveg ómótstæðileg!

Ég ber rjómaostinn fram með TUC Mini kexi sem passar einstaklega vel með. Kexið er stökkt, hæfilega salt og akkúrat í réttri stærð til að dýfa í rjómaostinn og ná með öllum þessum ljúffengu hráefnum í einum bita.

Þetta er einn af þessum réttum sem líta ótrúlega vel út á veisluborðinu en eru samt svo einfaldir í framkvæmd. Fullkomið fyrir saumaklúbbinn, vinkonukvöldið, jólaboðið eða bara notalega kvöldstund með góðu fólki!

Þeyttur rjómaostur með stökku beikoni, pekanhnetum og heitu hunangi

Þeyttur rjómaostur með stökku beikoni, pekanhnetum og heitu hunangi

Þeyttur rjómaostur með stökku beikoni, pekanhnetum og heitu hunangi

Þeyttur rjómaostur með stökku beikoni, pekanhnetum og heitu hunangi

Þeyttur rjómaostur með stökku beikoni, pekanhnetum og heitu hunangi

Þeyttur rjómaostur

  • 300 g Philadelphia Original rjómaostur
  • 100 g sýrður rjómi (18%)
  • 1 tsk sítrónubörkur
  • Klípa salt

Toppur

  • 150 g beikon
  • 70 g pekanhnetur
  • 3 msk hunang
  • ½–1 tsk chiliflögur (eftir smekk)
  • 1 tsk eplaedik
  • Ferskt timjan

Meðlæti

  • TUC Mini kex

Aðferð

  1. Eldið beikonið þar til það er orðið vel stökkt, þerrið á eldhúspappír til að taka mestu fituna og skerið í litla bita.
  2. Grófsaxið pekanhneturnar og ristið á þurri pönnu í 2–3 mínútur þar til þær hafa tekið örlítinn lit og ilma vel.
  3. Setjið Philadelphia rjómaost, sýrðan rjóma, sítrónubörk og smá salt í skál. Þeytið saman með handþeytara í 1–2 mínútur þar til blandan er orðin létt og silkimjúk.
  4. Setjið hunang, chiliflögur og eplaedik í lítinn pott. Hitið varlega í 1–2 mínútur þar til hunangið er orðið vel fljótandi og bragðið hefur blandast saman. Ekki þarf að sjóða hunangið.
  5. Dreifið þeytta rjómaostinum á fallegan disk, bakka eða í grunna skál. Myndið mjúkar bylgjur í yfirborðið með bakhlið á skeið.
  6. Dreifið stökku beikoninu og ristuðu pekanhnetunum yfir rjómaostinn.
  7. Hellið volgu chili-hunanginu yfir og skreytið með fersku timjan.
  8. Berið fram með TUC Mini kexi til að dýfa í rjómaostinn.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Þeyttur rjómaostur með stökku beikoni, pekanhnetum og heitu hunangi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5