Þorskhnakkar í kryddhjúp með sítrónusmjöri.
Ef þú ert að leita að fiskrétti sem er bæði einfaldur í gerð og smakkast eins og eitthvað sem þú myndir fá á góðum veitingastað, þá þarftu að prófa þessa þorskhnakka.
Þorskhnakkarnir fá fallegan kryddhjúp sem verður gullinbrúnn og örlítið stökkur við steikingu á meðan fiskurinn helst mjúkur, safaríkur og flagnar fallega í sundur. Kryddblandan gefur fiskinum dýpt og hlýju án þess að yfirgnæfa hið milda og góða þorskbragð.
Það sem setur punktinn yfir i-ið er svo sítrónusmjörið. Bráðið smjör með ferskum hvítlauk, sítrónu og steinselju sem hellt er yfir fiskinn rétt áður en hann er borinn fram. Samspilið á milli stökka kryddhjúpsins og ferska sítrónusmjörsins er hreint út sagt ómótstæðilegt.
Ég notaði þorskhnakka úr Besta bitanum af þorskinum frá Samherja sem eru einstaklega fallegir og þykkir bitar sem henta fullkomlega í svona rétt.
Svona matur er fullkominn fyrir bæði hversdagskvöld og helgarmat þegar mann langar í eitthvað aðeins meira „næs“ án þess að þurfa að eyða hálfum deginum í eldhúsinu.




Þorskhnakkar í kryddhjúp með sítrónusmjöri
- 500 g Besti bitinn af þorskinum frá Samherja – þorskhnakkar
- 1 egg
- 3 msk hveiti
- 1 msk paprikukrydd
- 2 tsk hvítlaukskrydd
- 1 tsk laukkrydd
- 1 tsk turmerik
- Salt og pipar
- Smjör til að steikja upp úr
Sítrónusmjör
- 100 g smjör
- Börkur og safi úr 1 sítrónu
- 3 hvítlauksrif
- 15 g fersk steinselja
Aðferð:
- Takið þorskhnakkana úr umbúðunum og þerrið þá.
- Setjið egg í skál og hrærið það saman.
- Setjið hveiti í aðra skál ásamt papriku-, hvítlauks- og laukkryddi, turmeriki, salti og pipar. Blandið öllu vel saman.
- Veltið þorskinum fyrst upp úr egginu, einn bita í einu, og svo upp úr hveitikryddblöndunni svo þorskhnakkarnir séu alveg hjúpaðir.
- Setjið smjör á pönnuna og steikið þorskhnakkana á báðum hliðum þar til þeir eru eldaðir í gegn.
- Útbúið núna sítrónusmjörið með því að setja smjör á pönnuna, rífa sítrónubörk yfir og kreysta sítrónusafann út á pönnuna. Rífið hvítlauksrifin út á pönnuna líka og saxið steinseljuna og bætið henni út á.
- Berið þorskhnakkana fram með sítrónusmjörinu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












