Linda Ben

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Samherja | Servings: 3-4 manns

Það þarf ekki mikið til að breyta góðum þorski í algjöra sælkeramáltíð. Þessir þorskhnakkar fá stökkan pistasíuhjúp með sítrónu, hvítlauk og ferskri steinselju sem gefur bæði ótrúlega góða áferð og fullt af bragði.

Ég nota Besta bitann af þorskinum frá Samherja þegar mig langar að gera aðeins meira úr fiskinum. Þorskhnakkarnir eru þykkir, safaríkir og jafn stórir, sem gerir það auðvelt að ná fullkominni eldun í hvert skipti. Það gerir svo mikinn mun þegar hráefnið er svona gott.

Ég bar þennan rétt fram með silkimjúkri sætkartöflumús sem er eitt af mínu uppáhalds meðlæti með þorskhnökkum. Hann væri líka dásamlegur með smjörsteiktum kartöflum, kartöflumús, grænum aspas eða fersku salati. Þetta er réttur sem lítur glæsilega út en er ótrúlega einfaldur í undirbúningi og hentar jafnt á virkum dögum sem þegar gesti ber að garði.

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

  • 4 x 125 g Besti Bitinn af þorskinum – þorskhnakkar frá Samherja
  • 70 g pistasíuhnetur
  • 10 g fersk steinselja
  • 1 dl súrdeigsbrauðraspur – súrdeigsbrauðsneiðar settar í blandara, betra ef nokkra daga gamalt brauð
  • Börkur af 1 sítrónu
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 100 g smjör
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Saxið pistasíuhneturnar og steinseljuna niður og setjið í skál. Setjið brauðraspinn í skálina. Rífið hvítlauksgeirana út í skálina og rífið sítrónubörkinn út í líka.
  3. Bræðið smjörið.
  4. Setjið þorskhnakkana í eldfastmót, þerrið með eldhúspappír og setjið vel af blöndunni yfir. Hellið smjörinu varlega yfir (passið að blandan detti ekki af), kryddið með salti og pipar. Bakið inn í ofni í 15 mín.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Þorskhnakkar í stökkum pistasíuhjúp

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5