Linda Ben

Þriggja hæða oreo kaka með ofur fluffý oreo kremi

Þetta er alveg ótrúlega góð kaka sem hentar við hvaða tilefni sem er.

Kökubotnarnir sjálfir eru alveg merkilega góðir þó ég segi sjálf frá, þeir eru svolítið þéttari en gengur og gerist og halda aveg mjög miklum raka í sér. Kremið er svo léttara og vinnur á móti.

Ég mæli með að bera þessa köku fram með þeyttum rjóma eða vanillu ís, það er alveg ótrúlega gott!

Þryggja hæða oreo kaka með ofur fluffý oreo kremi

Þryggja hæða oreo kaka með ofur fluffý oreo kremi

Þryggja hæða oreo kaka með ofur fluffý oreo kremi

Þryggja hæða oreo kaka með ofur fluffý oreo kremi

Þriggja hæða oreo kaka með ofur fluffý oreo kremi

  • 170 g smjör við stofuhita
  • 2 dl bragðlítil olía
  • 5 dl sykur
  • 6 egg
  • 1 msk vanilludropar
  • 10 dl hveiti
  • 1 tsk salt
  • 4 tsk lyftiduft
  • 4 ¾ dl súrmjólk
  • 16 oreo kökur, án krems

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C.
  2. Þeytið smjörið þar til það er létt og loftmikið, bætið því næst olíunni saman við og þeytið þar til allt hefur blandast vel saman.
  3. Bætið næst sykrinum út í og hrærið þar til blandast saman. Setjið eggin út í, eitt í einu og hrærið vel á milli.
  4. Setjið svo vanilludropana út í deigið og hrærið.
  5. Í aðra skál blandið saman hveiti, salti og lyftidufti. Bætið því hægt og rólega út í deigið á víxl við súrmjólkina, hrærið varlega saman á milli.
  6. Take kremið af oreo kexinu og mylhið það. Bætið út í deigið og blandið saman.
  7. Smyrjið 3 stk 18 cm smelluform og skiptið deiginu á milli formanna. Bakið í u.þ.b. 45 mín eða þar til botnarnir eru bakaðir í gegn.
  8. Kælið botnana vel og skerið toppinn af botnunum svo þeir séu sléttir.

Ofur fluffy oreo krem:

  • 700 g smjör við stofuhita
  • 700 g flórsykur
  • 16 oreo kökur
  • 1 ½ dl rjómi

Aðferð:

  1. Þeytið smjörið þar til það er létt og loftmikið, bætið þá flórsykrinum saman við og þeytið þar til kremið verður aftur létt og loftmikið.
  2. Takið kremið af oreo kökunum, setjið kremið beint ofan í skálina og hrærið saman við en brjótið kökurnar sjálfar meðal fínt niður og blandið saman við.
  3. Bætið rjómanum svo út í kremið og hrærið þar til kremið er orðið virkilega létt og loftmikið.
  4. Takið botnana sem hafa verið kældir alveg niður og tippurinn skorinn af þeim svo þeir eru alveg sléttir. Setjið einn botn á kökudisk og setjið krem á botninn svo myndast u.þ.b. 1 – 1 ½ cm þykkt lag af kremi, setjið næsta botn á, setjið krem og setjið svo efsta botninn á kökuna. Passið að kakan sé alveg bein og kremi hafið verið allstaðar sett á jafn þykkt. Hyljið kökuna með restina af kreminu, sléttið vel úr kreminu með spatúlu. Skreytið kökurna með brotnum oreo kexkökum.

Þryggja hæða oreo kaka með ofur fluffý oreo kremi

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5