Ef þú ert að leita þér að ljúffengum morgunmat sem bæði vekur þig og nærir þig þá er þetta morgunmaturinn fyrir þig. Það er upplagt að margfalda uppskriftina og gera nokkra grauta í einu að kvöldi til, eiga svo tilbúna grauta inn í ísskáp út vikuna.
Tiramisu chiabúðingur
Hafralag
- 2 msk hafrar
- 150 g grísk jógurt
- 4 stk smátt saxaðar döðlur
- 3 msk vatn
Chialag
- 1 msk chia fræ
- 1 dl vatn
- 3 msk sterkt kaffi
- 1 msk kakó
- 2 tsk hunang
- 1 msk möndlusmjör
Toppur
- 50 g grískt jógúrt
- 1/2 tsk kakó
Aðferð:
- Blandið saman höfrum, grísku jógúrti, smátt söxuðum döðlum og vatni í skál og blandið saman, látið standa á meðan chia lagið er útbúið.
- Setjið chia fræ, vatn, kaffi, kakó, hunang og möndlusmjör saman í blandara og blandið þar til allt hefur maukast saman.
- Í bolla setjið helminginn af hafrablöndunni og chiablönduna ofan á það. Setjið svo það sem eftir er af hafrablöndunni í bollann og svo það sem eftir er af chiablöndunni. Toppið með gríska jógúrtinu og sléttið úr, sigtið kakóið yfir.
- Hægt er að njóta strax en líka hægt að geyma í 3-4 daga inn í ísskáp í lokuu íláti.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: