Linda Ben

Trompkurls vöfflur

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Trompkurls vöfflur sem eru alveg dásamlega góðar!

Hér höfum við klassískar vöfflur með viðbættu Trompkurli sem gerir þær alveg ómótstæðilega bragðgóðar.

Trompkurls vöfflur

Trompkurls vöfflur

Trompkurls vöfflur

Trompkurls vöfflur

  • 4 egg
  • 80 g sykur
  • 400 AB-jógúrt
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 msk kaffi (má sleppa)
  • 260 g hveiti
  • 1 ½ tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 6 msk brætt smjör
  • 150 Trompkurl

Aðferð:

  1. Þeytið saman egg og sykur þar til létt, ljóst og loftmikið eða þar til deigið myndar borða þegar þeytarinn er tekinn upp og deigið lekur aftur ofan í skálina.
  2. Bræðið smjörið og leyfið því að brúnast örlítið með því að leyfa því að malla í u.þ.b. 2 min í pottinum. Leyfið smjörinu að kólna aðeins.
  3. Bætið jógúrtinu, vanilludropunum og kaffinu út í og blandið saman við með sleikju.
  4. Setjið hveiti, lyftiftiduftið og saltið í skál og blandið saman. Sigtið ofan í deigið og veltið því saman við varlega með sleikju.
  5. Bætið smjörinu út í deigið og veltið því varlega saman við með sleikju þar til allt hefur blandast saman.
  6. Bætið Trompkurlinu úr í deigið og bakið á vöfflujárni, u.þ.b. 1 dl af deigi í einu.
  7. Berið fram með rjóma, sultu, berjum og því sem hugurinn girnist.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

Trompkurls vöfflur

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5