Tzatziki er ein af þessum klassísku sósum sem maður verður aldrei leiður á 😍
Hún er fersk, létt og ótrúlega bragðgóð og passar með nánast öllu. Hvort sem þú ert að bera hana fram með grillkjöti, kjúklingi, fiski, lambakjöti, grænmeti eða nýbökuðu brauði þá lyftir hún alltaf máltíðinni upp á næsta stig ✨
Það sem mér finnst gera gott tzatziki er að nota góða gríska jógúrt, ferska agúrku, nóg af dilli og smá sítrónu til að gefa ferskleika. Létta gríska jógúrtin frá Örnu Mjólkurvörum gefur sósunni dásamlega kremkennda áferð á meðan hún er fitulítil og létt. Agúrkan og dillið halda henni ferskri og sumarlegri 🥒🌿
Þetta er líka ein af þessum uppskriftum sem verður oft enn betri ef hún fær að standa aðeins í ísskápnum áður en hún er borin fram. Þá fá bragðin tíma til að blandast saman og útkoman verður alveg einstaklega góð.
Einföld, fersk og klassísk sósa sem á alltaf heima í sumarveislunni eða með grillmatnum



Tzatziki sósa
- ½ agúrka
- 2 ½ dl létt grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
- Safi úr ½ sítrónu
- 1 msk hágæða extra virgin ólífu olía
- 1 hvítlauksgeiri
- Salt
- 15 g ferskt dill
Aðferð:
- Rífið agúrkuna niður með rifjárni. Þerrið svolítið með eldhúspappír til að taka mesta vökvann en ekki þurrka.
- Setjið í skál ásamt léttu grísku jógúrtinni, sítrónusafa, ólífu olíu, rifnum hvítlauksgeira, salti og smátt söxuðu dilli. Blandið öllu saman.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








