Linda Ben

Vatnsdeigsbollur með ananasbúðingnum hennar ömmu Dúu

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: U.þ.b. 15 bollur

Vatnsdeigsbollur með ananasbúðingnum hennar ömmu Dúu. Ég var að þrá ananasbúðinginn hennar ömmu Dúu um daginn en ég er alin upp við að fá hann í eftirrétt í matarboðum hjá ömmu. Þegar ég gerði hann um daginn var mér hugsað um bolludaginn sem nálgast óðfluga. Búðingurinn er nefninlega alveg stórkostleg fylling í vatnsbollur. Bollurnar eru svo toppaðar með hvítsúkkulaði ganas og örlítið af sítrónuberki.

Útkoman er dásamlega ferskar og ljúffengar bollur sem svíkja engann.

Vatnsdeigsbollur með ananasbúðingnum hennar ömmu Dúu

Vatnsdeigsbollur með ananasbúðingnum hennar ömmu Dúu

Vatnsdeigsbollur með ananasbúðingnum hennar ömmu Dúu

Ananasbúðingur

  • 2 egg
  • 3 msk sykur
  • 150 ml ananassafi (ég nota safann af ananas í stórri ananasdós (432 g))
  • Safi úr 1/2 sítrónu
  • 4 blöð matarlím
  • 250 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum

Aðferð:

  1. Leggið matarlímsblöðin í skál með köldu vatni og látið standa í u.þ.b. 10 mín.
  2. Þeytið saman eggin og sykur mjög vel þar til blandan er orðin létt, loftmikil og ljós.
  3. Setjið ananassafann og sítrónusafann í pott. Takið matarlímsblöðin upp úr skálinni og kreystið mesta vatnið frá. Setjið matarlímsblöðin ofan í pottinn og hitið varlega þar til matarlímið er bráðnað. Hellið heitu ananassafablöndunni í skál og setjið inn í ísskáp þar til blandan hefur náð u.þ.b. stofuhita.
  4. Hellið þá ananasblöndunni varlega ofan í eggjablönduna með þeytarann í gangi og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  5. Þeytið rjómann og blandið honum varrlega saman við ananaseggjablönduna með sleikju.
  6. Kælið í u.þ.b. 2 klst eða þar til blandan hefur þykknað. Gerið vatnsdeigsbollurnar og hvítsúkkulaðitoppinn á meðan.
  7. Setjið búðinginn í sprautupoka með stórum stút.
  8. Skerið bollurnar í sundur og sprautið búðingnum inn i bollurnar, lokið.

Hvítsúkkulaðitoppur

  • 150 g hvítt súkkulaði
  • 75 g rjómi

Aðferð:

  1. Bræðið saman hvítt súkkulaði og rjóma, hrærið þar til samlagað. Kælið þar til blandan hefur þykknað.
  2. Smyrjið toppinn á bollunum með blöndunni.

Vatnsdeigsbollur

  • 125 g smjör
  • 1 msk sykur
  • 275 ml vatn
  • 170 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 3-4 egg

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
  2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
  3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
  4. Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
  5. Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
  6. Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5