Linda Ben

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu

Recipe by
40 mín
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM | Servings: U.þ.b. 15 bollur

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu eru bollur sem eru einfaldar að gera og bragðast stórfenglega. Hindber og lakkrís er tvenna sem klikkar bara ekki.

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu

Vatnsdeigsbollur með hindberja og lakkrísrjómafyllingu

Vatnsdeigsbollur

  • 125 g smjör
  • 1 msk sykur
  • 275 ml vatn
  • 170 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 3-4 egg

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
  2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
  3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
  4. Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
  5. Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
  6. Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.

Hvíttsúkkulaðiganas toppur

  • 150 hvítt súkkulaði
  • 75 ml rjómi

Aðferð:

  1. Hitið rjómann vel en ekki láta hann sjóða.
  2. Setjið hvíta súkkulaðið í skál og hellið heita rjómanum yfir, hrærið saman þar til samlagað. Setjið skálina í ísskáp á meðan þið gerið fyllinguna.

Hindberja og lakkrísrjómafylling

  • 500 ml rjómi
  • Hindberja St. Dalfour sulta
  • 50 g salt lakkrísduft (t.d. muldir Tyrkisk peber brjóstsykrar eða hockey pulver duft)

Aðferð:

  1. Þeytið rjómann.
  2. Skerið bollurnar í sundur og setjið vel af sultu i botninn.
  3. Setjið rjóma yfir sultuna og u.þ.b. 1/2 – 1 tsk af lakkrísdufti. Lokið bollunni og setjið svolítið af hvíta súkkulaðiganasinu yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5