Linda Ben

Vatnsmelónu margaríta

Recipe by
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM

Ég ætla að deila með ykkur kokteil sem á eftir að slá í gegn um helgina.

Hann inniheldur sem sagt tekíla, cointreau, lime safa, vatnsmelónuíste en þessu eru öllu saman smellt í blandara með fullt af klökum og hrist saman.

Þar sem þetta er nú margarita þá að sjálfsögðu smellir maður lime á glasbrúnina og dýfir í salt, skreytir svo með lime sneið og smá vatnsmelónu.

Ég notaði vatnsmelónu íste-ið frá Pfanner þar sem hann er ekki of sætur og hentar því vel í margarítu. Kokteillinn er því léttur og ferskur, en ekki ofur sætur, sem er að mínu mati best.

Efri uppskriftin miðast við einn drykk en þar sem þessi kokteill hentar líka vel til að bjóða upp á í veislum gerði ég líka uppskrift sem hægt er að blanda í stóra könnu.

Vatnsmelónu margaríta

Vatnsmelónu margaríta

Vatnsmelónu margaríta

  • 200 ml Pfanner vatnsmelónu íste
  • 50 ml Cointreau
  • 50 ml tekíla
  • Safi úr 1 lime – meira til að skreyta með
  • Klakar
  • Vatnsmelóna til að skreyta með

Aðferð:

  1. Setjið klaka, Pfanner safann, Cointreau, tekíla og lime safann í kokteilhristara og hristið saman, hellið drykknum í kokteilglas.
  2. Skreytið með lime og vatnsmelónu sneið.

Stór uppskrift:

  • 2 lítrar Pfanner vatnsmelónu íste
  • 400 ml Cointreau
  • 400 ml tekíla
  • Safi úr 10 lime – meira til að skreyta með
  • Klakar
  • Vatnsmelóna til að skreyta með

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Vatnsmelónu margaríta

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5