Þessar vefjur eru fullkmnar í nesti, það er ótrúlega þægilegt að skera þær niður í litla bita og raða í nestisbox, börnin alveg elska þær og fullorðnir líka þar sem þær eru virkilega góðar.
Ég notaði vegan vörur í þessar vörur en vegan uppskriftir er það sem er lang mest um beðið hjá mér. Ég fór því á stúfana og fann virkilega góða vegan skinku og ost í Nettó frá Vegan Deli og notaði svo Oatly smurostinn góða til að smyrja vefjurnar.
Vefjubitar – góð nestis hugmynd
- Vefjur
- Smurostur, þykkt lag
- Ostur
- Skinka
- Gúrku sneiðar
- Papriku sneiðar
Aðferð
- Smyrjið vefjurnar ríkulega af smurosti
- Setjið ostsneiðar og skinku á vefjurnar, ásamt grænmeti og rúllið upp. Skerið í 3 cm bita, setjið smjörpappír í nestisbox og pakkið vefjunum inn í nestisboxið, geymið í kæli.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: