Linda Ben

Vegan vanillukaka með smjörkremi

Recipe by
1 klst og 30 mín

Vegan vanillukaka.

Ég á litla frænku sem er með ofnæmi og elskar kökur. Það er mér afar mikilvægt að hún geti fengið sér flest sem er á boðstólum í ofnæmislausri útgáfu.

Þessi vanillukaka er bæði eggjalaus og mjólkurlaus, hún inniheldur ekki hnetur eða neitt sem algengt er að hafa ofnæmi fyrir þar sem ég vildi ég gera köku sem flest allir gætu gætt sér á, líka þeir sem eru vegan.

Kakan er þétt og rakamikil en á sama tíma létt og svampkennd. Hún er afar bragðgóð með ríkjandi vanillubragði.

Ég bakaði kökuna í kanínuformi en ykkur er óhætt að baka hana í venjulegu smelluformi og skreyta hana alveg eins og þið viljið. Það er einnig hægt að baka hana í tveimur 20 cm formum og setja krem á milli botnanna.

Vegan vanillukaka, mjólkurlaus kaka

Vegan Vanillukaka

  • 350 g hveiti
  • 300 g sykur
  • 2 tsk matarsódi
  • 1 ½ tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 4 ½ dl jurtamjólk (ég nota möndlumjólk)
  • 1 ½ dl bragðlítil olía
  • 1 msk vanilludropar
  • 1 ½ msk eplaedik

Vegan vanillu smjörkrem

  • 400 g vegan smjör
  • 750 g flórsykur
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 msk síróp

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið hveiti, sykur, matarsóda, lyftiduft og salt í skál.
  3. Bætið jurtamjólk, olíu, vanilludropum og eplaediki út í og blandið saman.
  4. Smyrjið form sem er 24 cm breitt eða svipað stórt og hellið deiginu í formið. Bakið í u.þ.b. 30-35 mín eða þar til pinni kemur hreinn upp úr kökunni þegar honum er stungið í hana miðja. Kælið kökuna alveg niður áður en kremið er sett á hana.
  5. Setjið vegan smjörið í hrærivél og þeytið þar til mjúkt, bætið þá flórsykrinum saman við og þeytið. Bætið því næst vanilludropum og sírópi út í, þeytið þar til létt og loftmikið.
  6. Smyrjið kreminu á kalda kökuna að vild. Ég setti kremið í sprautupoka með lokuðum stjörnustút og sprautaði kreminu þannig á kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Vegan vanillukaka, mjólkurlaus kaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5