11 Hugmyndir að eftirréttum yfir hátíðarnar
Hér er að finna fjölbreytt úrval af eftirréttum sem ættu að slá í gegn yfir hátíðarnar.
Glæsilegur aðventukrans og dekkað upp á aðventuboði
Núna er aldeilis farið að styttast í jólin! Ég verð að viðurkenna að ég er alveg ótrúlega spennt fyrir þessum jólum en við erum að fara halda upp á fyrstu jólin í nýja húsinu okkar sem við byggðum frá grunni.
Innlit heim og nokkrar hugmyndir að kertastjaka uppröðunum
Kostuð umfjöllun af Iittala
Mig langar að sýna ykkur nokkrar útfærslur á því hvernig hægt er að raða saman Iittala kertastjökum í mismunandi útfærslum og gefa ykkur örlítð innlit heim í leiðinni. Við nefninlega fluttum í aðal rými hússins, það er að segja neðri hæðina, fyrir ekki svo löngu. Við erum ennþá að vinna í að klára efri hæðina og því þurftum við að loka á milli tímabundið. En við erum búin að koma okkur afar vel fyrir hér á neðri hæðinni, búin að koma fyrir bráðabirgða eldhúsi og setja bráðabirgða gólfefni þar sem við ætlum að leggja gólfefnið á allt húsið í einu. En það er efni í heila færslu að segja ykkur frá stöðunni hér heima og ætla ég að geyma það þangað til síðar og segja ykkur þá miklu nánar frá.
12 hugmyndir af bragðgóðum og einföldum fiskréttum
Hér er að finna allskonar fiskrétti sem eru í uppáhaldi hjá mér. Ég hef alltaf jafn gaman að því að búa til svona lista og rifja upp gamlar uppskriftir í leiðinni. Það vakna yfirleitt hjá mér minningar, hvernig það var þegar við fjölskyldan borðuðum þennan mat og hvernig stemmingin var. Eftir að hafa sett saman þennan lista er ég komin með óstjórlega mikla löngun í góðan fiskrétt og mun ég að sjálfsögðu elda einn slíkan á morgun.
Stílisering fyrir vínkynningu Rémy Martin
Mér bauðst svo skemmtilegt verkefni um daginn en mér bauðst að stílisera viðburð fyrir eitt glæsilegasta koníakið á markarnum í dag, Rémy Martin.
Innlit heim í notalega 60 fm íbúð
Ég er alltaf að reyna að vera duglegri að skrifa um heimilið hérna á blogginu en ég er aðallega virk í því á Instagram og því er klárlega kominn tími á smá uppfærslu.
Nýtt svart og matt matarstell
Ég sá á dögunum alveg guðdómlega fallegt matarstell sem ég bara varð að eignast.
Nýtt eldhús og nýjar græjur
Fyrir ekki svo löngu fluttum við inn í húsið okkar sem við erum að byggja. Húsið er þó langt frá því að vera tilbúið ennþá, en við gerðum hluta af því tilbúið svo við gætum flutt inn. Eins gaman og það var að búa í miðbænum, þá var það líka óþægilegt þar sem lífið okkar var alltaf í Mosfellbænum. Það fór því óttarlegur tími í það að sitja í umferð til dæmis.
Flórída yfir jólin
Seinustu jól voru með örlítið öðru sniði þetta árið þar sem við fengum að njóta þeirra í Flórída í 28°C með fjölskyldu minni. Mig hefur lengi langað að deila þeirri upplifun með ykkur þar sem þetta var alveg frábært og mæli ég heilshugar með því að upplifa jól í öðru landi að minnsta kosti einu á ævinni, helst oftar.