Chiagrautur með ferskum berjum og stökku granóla
Þessi dásamlega góði chiagrautur með ferskum berjum og stökku granóla er fullkominn fyrir brunchboð eða þegar maður vill vinna sér aðeins í haginn og eiga góðan morgunmat tilbúinn í ísskápnum. 🍓
Uppskriftin er stór og hentar því einstaklega vel þegar von er á mörgum í brunch. Það besta er að hægt er að útbúa grautinn kvöldið áður og þá er lítið annað eftir en að setja hann í fallegar skálar og toppa með ferskum jarðarberjum og bláberjum frá Driscoll’s og ljúffengu súkkulaði- og hnetusmjörsgranóla.
Grauturinn er gerður úr AB-mjólk með vanillu og chiafræjum sem fá að standa saman yfir nótt og mynda mjúka og góða áferð. Fersku berin gefa honum dásamlegan ferskleika og granólað bætir við góðu krönsi.
Þetta er líka frábær uppskrift fyrir þá sem vilja undirbúa morgunmatinn fyrir nokkra daga í einu. Þá er einfaldlega hægt að geyma grautinn í lokuðu íláti í ísskápnum og taka sér skammt á hverjum morgni. Ég mæli með að bæta berjunum og granólanu við rétt áður en grauturinn er borinn fram svo allt haldist ferskt og granólað stökkt.
Þú getur við að fá u.þ.b. 4-5 morgunmáltíðir úr þessari uppskrift en ef þú ert að hugsa um að nota hana í brunchboð þá geturu miðað við að uppskriftin gefi þér u.þ.b. 10 litlar skálar. Glösin sem ég notaði eru kokteilglös frá Riedel.
Einfalt, gott og ótrúlega þægilegt! 💗





Chiagrautur með ferskum berjum og stökku granóla
- 1 líiter Ab mjólk með vanillu
- 10 msk chia fræ
- Driscoll’s jarðaber
- Driscoll’s bláber
- Súkkulaði og hnetusmjörs granóla
Aðferð:
- Setjið AB-mjólkina í stóra skál og bætið chiafræjunum út í. Hrærið vel saman og látið standa í 5–10 mínútur. Hrærið þá aftur svo chiafræin dreifist jafnt um blönduna.
- Lokið skálinni og setjið í ísskáp yfir nótt, eða þar til chiafræin hafa þykknað blönduna.
- Skiptið chiagrautnum á milli skála. Skerið jarðarberin niður og dreifið þeim ásamt bláberjunum yfir.
- Toppið með súkkulaði- og hnetusmjörsgranóla rétt áður en grauturinn er borinn fram.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










