Eitt Sett bollur fyrir bolludaginn.
Einstaklega góðar vatnsdeigsbollur fylltar með súkkulaðirjóma og Eitt Sett súkkulaðibitum.
Ef þú elskar lakkrís og súkkulaði þá eru þetta bollurnar fyrir þig.
Eitt Sett bollur
- Vatnsdeigsbollur
- 500 ml rjómi
- 200 g Síríus suðusúkkulaði
- 75 ml rjómi
- Eitt Sett bitar
- 50 g Siríus lakkrískurl
Aðferð:
- Bræðið saman 200 g Síríus suðusúkkulaði og 75 ml rjóma.
- Létt þeytið 500 ml rjóma og bætið út í 2 msk af súkkulaðirjómanum, fullþeytið rjómann.
- Skerið niður Eitt Sett bita og bætið út í rjómann.
- Skerið bollurnar í helminga og fyllið þær af rjómanum. Lokið og setjið súkkulaðið yfir, skreytið með Síríus lakkrískurli.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar