Ef þú ert að skipuleggja stelpukvöld og vilt hafa það bæði fallegt, kósý og án mikillar fyrirhafnar, þá er þetta akkúrat það sem þú þarft að lesa.
Hér set ég saman einfalt en ótrúlega girnilegt veisluborð með kokteilum, smáréttum og sætindum sem passa fullkomlega saman. Hugmyndin er að blanda saman keyptu og heimagerðu til að spara tíma en samt fá þessa „wow“ tilfinningu þegar allt er sett upp á fallegan hátt.
Á borðinu eru meðal annars safaríkar kjötbollur, rækjur í marineringu. Gullfallegur rjómaostabakki með parmaskinku og pistasíum, ostabakki með góðum ostum og ferskum berjum, bakaður ostur og stökkar kartöfluflögur. Með þessu eru svo sætir eftirréttir eins og stracciatella ostakökur og súkkulaðibomba með karamellusúkkulaðimús sem klára máltíðina fullkomlega. Allt eru þetta réttir sem verða bara betri eftir því sem líður á kvöldið, akkúrat þegar maður vill bara vera að natra, spjalla og njóta.
Drykkirnir setja svo punktinn yfir i-ið. Fersk hvítvíns sangría og hindberja sour kokteill sem eru bæði fallegir og auðveldir að gera.
Þetta er svona stelpukvöld sem er bæði afslappað og elegant, þar sem allir finna eitthvað sem þeim finnst gott og þú getur notið þess að vera með, án þess að vera föst inni í eldhúsi allt kvöldið 🥂✨
Fallegt borð skiptir ekki síður máli þegar kemur að því að útbúa gott stelpukvöld. Ég fór í Bako og fann þar gullfallega bakka, diska og glös. Góður og fallegur borðbúnar skiptir nefninlega meira máli en maður myndi fyrst halda þegar kemur að því að skapa góða upplifun. Rétt val á borðbúnaði gerir ótrúlega mikið – einfaldur matur verður hátíðlegur og stemningin verður samstundis hlý og boðleg. Ég legg mikið upp úr því að fjjárfesta í endingargóðum borðbúnaði sem gleðja augað.
Hér hef ég sett hlekk á allan borðbúnaðinn sem ég notaði svo þið getið auðveldlega fundið sömu vörur í Bako.
Borðbúnaður:
- Panna undir bakaðan ost
- Panna undir kjötbollur
- Álbakki undir rækjur
- Steypujárnspottur með skafti
- Kokteilaglös
- Sangríaglös með rörum
- Bretti undir ostabakka
- Bretti undir rjómaosta parmaskinku bakka
- Skál undir ber
- Diskur undir Stracciatella ostakökur
- Diskur undir súkkulaðibombur
- Skál undir kartöfluflögur
- Litlir diskar
- Diskur undir appelsínu og eplasneiðar
- Kokteilahristarasett
- Klaka fata













Hugmyndir fyrir stelpukvöldið – kokteilar, ostabakki og einfalt veisluborð
- Kjötbollur – keyptar tilbúnar
- Rækjur í marineringu
- Rjómaostabakki með parmaskinku og pistasíuhnetum
- Ostabakki – Auður með chillí, brie, Saint Albray Gourmand, jarðaber, bláber og parmaskinka
- Bakaður ostur
- Kartöfluflögur
- Stracciatella ostakökur
- Ómótstæðileg súkkulaðibomba með karamellusúkkulaðimús
- Hvítvíns sangría
- Hindberja sour kokteill
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












