Kjúklinga burrito skál
Þegar mig langar í eitthvað sem er bæði bragðgott, saðsamt og einfalt að útbúa enda ég oft á burrito skál.
Þessi kjúklinga burrito skál er full af litum, ferskleika og góðu bragði. Ilmandi basmati hrísgrjón mynda grunninn og svo bætast við safaríkur kjúklingur, kryddaðar svartar baunir, ferskt tómatsalat, maís, heimagert guacamole og smá chilli mæjó sem bindur allt saman.
Ég notaði Tilda Basmati Boil in Bag hrísgrjón sem mér finnst einstaklega þægileg þegar ég vil flýta fyrir í eldhúsinu. Pokarnir tryggja að hrísgrjónin verði alltaf létt, laus og fullkomlega soðin án þess að maður þurfi að mæla vatn eða hafa áhyggjur af eldunartímanum. Basmati hrísgrjónin frá Tilda eru líka þekkt fyrir ilmandi bragð og létta áferð sem passar einstaklega vel í svona skálar
Það sem mér finnst svo gott við svona skálar er að hver biti er aðeins öðruvísi. Stundum fær maður meira af guacamole, stundum meira af krydduðu baununum eða ferska tómatsalatinu. Þetta verður því bæði spennandi og ótrúlega bragðgóð máltíð sem maður verður ekki leiður á.
Þetta er fullkominn hversdagsmatur þegar maður vill hafa kvöldmatinn einfaldan en samt næringarríkan og fallegan á disknum.
Og svo er þetta ein af þessum uppskriftum sem öll fjölskyldan getur sett saman eftir sínum smekk, sem er alltaf stór plús




Kjúklinga burrito skál
- Tilda Boil in bag – Basmati hrísgrjón
- Kjúklingur – sem er búið að elda
- Maísbaunir
- Kóríander
- Svartar baunir
- 1 tsk hvítlaukskrydd
- 1 tsk paprikukrydd
- Salt og pipar
- Tómatur
- Rauðlaukur
- Guacamole
- Chillí mæjó
Aðferð:
- Setjið Tilda hrísgrjónin í pott með vatni og sjóðið í 12 mín.
- Skerið kjúklinginn niður í bita.
- Skerið kóríander niður og setjið í skál með maísbaununum, saltið örlítið.
- Skolið svörtu baunirnar og steikið á pönnu með smá olíu, hvítlaukskryddi, paprikukryddi, salti og pipar. Hitið á pönnunni.
- Skerið tómata og rauðlauk og blandið saman.
- Útbúið guacamole.
- Setjið hrísgrjónin fyrst í skálina, setjið næst svörtu og gulu baunirnar. Bætið einnig tómötunum í skálina ásamt kjúklingnum og guacomole. Toppið með chillí mæjó.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar











