Það þarf ekki mikið til að breyta þessum hágæða laxi í algjöra sælkeramáltíð. Þessi uppskrift er innblásin af grískri matargerð þar sem ferskar kryddjurtir, sítróna, hvítlaukur, ólífur og safaríkir tómatar fá að njóta sín með dásamlegum ferskum laxinum frá Landlaxi.
Landlax er ræktaður í landeldi hjá Samherja þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni, hreinleika og fulla stjórn á aðstæðum. Í stað hefðbundins sjókvíeldis er laxinn alinn á landi í lokuðu kerfi þar sem.
Marineringin er bæði fersk og bragðmikil og gerir laxinn einstaklega safaríkan. Berið hann fram með heimagerðri tzatziki sósu og þið eruð komin með léttan, fallegan og sumarlegan rétt sem hentar jafnt á virkum dögum sem þegar gesti ber að garði.




Lax í grískri sælkeramarineringu
- 700 g Landlax – ferskur fiskur með roði
- 1 msk ferskt oreganó (eða 1 tsk þurrkað)
- 1 msk ferskt dill
- Safi úr ½ sítrónu
- 2 msk olía
- 2 hvítlauksrif
- Salt og pipar
- 200 g litlir tómatar
- 150 g blandaðar ólífur
- Tzatziki sósa
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
- Setjið laxinn í eldfastmót og þerrið hann örlítið með eldhúspappír.
- Saxið oreganó og dill smátt og setjið í skál ásamt sítrónusafa, olíu og rífið hvítlauksrifin í skálina, blandið öllu saman og hellið yfir laxinn. Kryddið með salti og pipar.
- Dreifið tómötum og ólífum í kriingum laxinn í eldfastamótinu.
- Bakið inn í ofni í u.þ.b. 13-14 mín og leyfið laxinn aðeins að hvíla við stofuhita áður en hann er borinn fram með ferskri Tzatziki sósu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








