Linda Ben

Mjúkir snúðar með bláberja og sítrónu fyllingu

Recipe by
3 klst og 30 mín
Prep: 1 klst | Cook: Unnið í samstarfi við St. Dalfour | Servings: 16 snúðar

Mjúkir snúðar með bláberja og sítrónu fyllingu sem þú átt eftir að elska!

Þessi uppskrift er ný útfærsla af hinum geysivinsælu mjúku kanilsnúðum sem hafa tröllriðið öllu undanfarin misseri, ef þú átt eftir að smakka þá, þá verður þú hreinlega að gera það við fyrsta tækifæri, eða einfaldlega smakka þessa! Þú verður ekki svikin, því get ég lofað þér! ❤️

Snúða uppskriftin sjálf er sú sama, enda eru þeir að mínu mati allra mýkstu og bestu snúðar sem fyrir finnast, en fyllingin er allt önnur. Þessir eru fylltir með St. Dalfour bláberjasultu, sítrónuberki og hvítu súkkulaði og hjúpaðir með sítrónu glassúr. St. Dalfour sulturnar eru eins og margir vita sykurlausar og einungis gerðar úr ávöxtum og sættar ávaxtasykri.

Ef þú fýlar snúða og bláber þá áttu eftir að dýrka þessa bláberja snúða og eflaust eftir að gera þá aftur og aftur ❤️

Mjúkir snúðar með bláberja og sítrónu fyllingu

Mjúkir snúðar með bláberja og sítrónu fyllingu

Mjúkir snúðar með bláberja og sítrónu fyllingu

Mjúkir snúðar með bláberja og sítrónu fyllingu

Mjúkir snúðar með bláberja og sítrónu fyllingu

  • 7 g þurrger
  • 120 ml volgt vatn
  • 120 ml volg mjólk
  • ½ dl sykur
  • 80 g brætt smjör
  • 1 tsk salt
  • 1 egg
  • 450 g hveiti
  • 2 krukkur St. Dalfour bláberja sulta
  • 1 sítróna
  • 150 g hvítt súkkulaði
  • 400 g flórsykur

Aðferð

  1. Nákvæmt myndband af aðferðinni finniði í highligts á Instagraminu mínu Instagram.com/lindaben undir kanilsnúðar
  2. Byrjað er á að setja volgt vatn og volga mjólk ásamt gerinu í litla skál og hrært smá til að þurrgerið blotni.
  3. Setjið sykur, smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
  4. Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið um það bil 50 g eftir, og hellið gerblöndunni líka ofan í stóru skálina. Hnoðið deigið saman þangað til allt hefur blandast vel. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt setjið þá restina af hveitinu út í.
  5. Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
  6. Þegar deigið hefur hefað sig dreifið þið svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
  7. Smyrjið sultunni á deigið þannig að sultan þekji deigið, rífið börkinn af sítrónunni yfir. Skerið hvíta súkkulaðið í smá bita og dreyfið þeim yfir.
  8. Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 12 – 15 bita.
  9. Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í um það bil 30 mín.
  10. Stillið ofninn á 175°C og undir og yfir hita.
  11. Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín (tími fer eftir hversu þykkir snúðarnir eru) eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.
  12. Á meðan snúðarnir eru í ofninum er gott að útbúa glassúrið. Setjið flórsykur í skál og kreystið sítrónuna út á (passið að steinarnir úr sítrónunni fari ekki með), blandið saman þar til glassúrinn verður þykk-fljótandi. Vegna þess að sítrónur eru mis safaríkar gætuð þið þurft að kreysta aðra sítrónu út í til að fá rétta áferð. Glassúrinn á að vera mjög stífur en samt þannig að það er hægt að sprauta honum/smyrja á snúðana.
  13. Setjið glassúrinn í sprautupoka með stórum hringlaga stút og sprautið honum svo yfir í því magni sem þið viljið, eða einfaldlega smyrjið honum yfir. Berið fram volga.

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5