Hér höfum við nokkrar bragðgóðar hugmyndir í heilsusamlegri kantinum sem upplagt er að bera fram á brunch borðið. Ljúffengar hafrakökur með hnetusmjörssúkkulaðikremi sem eru alveg dásamlega góðar.
Maískökusnitturnar eru afskaplega ljúffengar og einfaldar. Maður einfaldlega smyr litlar maískökur með rjómaosti og setur lax á þær, algjörar bragðsprengjur.
Chiagrauturinn er virkilega hollur, góður og falleg að setja hann í glös á fæti. Það er upplagt að gera hann kvöldið áður og leyfa honum að taka sig vel yfir nóttina, þá verður áferðin svo búðingsleg og góð.
hafrakaka með hnetusmjörs súkkulaðikremi
- 230 g haframjöl fínt frá Muna
- 175 g möndlumjöl
- 2 tsk matarsódi
- 1 tsk salt
- 1 tsk kanill Caylon frá Muna
- 1 dl dökkt agave síróp frá Muna
- 180 g kókosolía bragð og lyktarlaus frá Muna
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 250 ml hnetusmjör fínt frá Muna
- ½ dl dökkt agave síróp frá Muna
- ½ dl kókosolía bragð og lyktarlaus frá Muna
- 200 g suðusúkkulaði
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
- Blandið saman haframjöli, möndlumjöli, matarsóda, salti og kanil.
- Bræðið kókosolíuna og bætið henni út í hafrablönduna ásamt eggjum og vanilludropum, hrærið saman.
- Setjið smjörpappír í 20×30 cm stórt form og hellið deiginu ofan í formið. Bakið í 20-25 mín. Kælið kökuna.
- Setjið hnetusmjörið í skál ásamt agave sírópi og bræddri kókosolíu, hellið ofan á kökuna og sléttið úr.
- Bræðið súkkulaðið og hellið ofan á hnetusmjörslagið, blandið því létt saman við hnetusmjörið til að fá fallegt mynstur.
- Kælið kökuna inn í ísskáp í u.þ.b. 1-2 klst eða þar til súkkulaðið hefur harðnað.
Chia grautur með grísku jógúrti og ávaxtamúslí
Uppskrift miðast við 1 graut, margfaldaðu miðað við þann fjölda af grautum sem þú vilt gera.
- 1 msk chia fræ frá Muna
- 1 msk haframjöl fínt frá Muna
- ½ msk kakónibbur
- 1 tsk hreint kakó frá Muna
- 1 tsk hörfræ frá Muna
- ½ msk hampfræ frá Muna
- 1 dl möndlumjólk
- ½ tsk vanilludropar
- Fersk bláber
- 1-2 msk grískt jógúrt með karamellu og perum
- Haframúslí með eplum og kanil frá Muna
- Þurrkaðir bananar frá Muna
Aðferð:
- Setjið í skál chia fræ, haframjöl, kakónibbur, hreint kakó, hörfræ, hampfræ og blandið saman.
- Bætið út á möndlumjólkinni og vanilludropunum og hrærið. Leyfið grautnum að taka sig í ca 1 klst.
- Bætið grískri jógúrt út á ásamt haframúslíi, þurrkuðu bönunm og bláberjum.
Maískökusnittur með laxi
- Maískökur með sýrðum rjóma og lauk
- Rjómaostur
- Grafinn eða reyktur lax
- Svartur pipar
Aðferð:
- Smyrjið maískökurnar með rjómaosti.
- Skerið laxinn í þunnar sneiðar og raðið á kökurnar.
- Toppið með möluðum svörtum pipar.
Annað sem borið var fram á brunch borðinu var:
- Súrdeigsbrauð
- Gullostur
- Kirsuberjatómatar
- Belgískar vöfflur
- Appelsínubátar
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar