Linda Ben

Philly Cheesesteak Steikarloka

Recipe by
10 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Vaxa

Ef þið elskið djúsí steikarlokur þá verðið þið að prófa þessa! 🤤🥩

Þunnt skorið nautakjöt, smjörsteiktur laukur, bráðinn ostur og ferskt grænmeti eru sett saman á stökkt smjörsteikt súrdeigsbrauð og toppað með góðri béarnaise-sósu. Útkoman er ótrúlega safarík og bragðmikil steikarloka sem minnir á klassíska Philly cheesesteak.

Ég toppaði steikarlokuna með baunasprettum frá Vaxa, sem gefa henni ferskleika og skemmtilega stökka áferð. Spretturnar frá Vaxa eru alltaf einstaklega ferskar og bragðgóðar og lyfta réttinum á einfaldan hátt, bæði þegar kemur að bragði og útliti. Auk þess eru þeir stútfullir af næringu og frábær leið til að bæta meira grænmeti inn í máltíðina. 🌱

Þetta er fullkominn réttur þegar mig langar í eitthvað sem er aðeins meira dekrað en samt fljótlegt í undirbúningi. Hann hentar jafnt í helgarmat, kvöldmat eða þegar þið eigið afgang af góðri steik og viljið nýta hana á sem allra bragðbestan hátt.

Steikarsamloka

Steikarsamloka

Steikarsamloka

Philly Cheesesteak Steikarloka

  • Smjör
  • Laukur
  • Hvítlauksrif
  • Súrdeigsbrauð
  • Mæjónes
  • Klettasalat frá Vaxa
  • Tómatar
  • Þunnt skorið nautakjöt (upplagt að nota t.d. mínútusteik eða afganga af góðri steik)
  • Ostsneiðar
  • Sprettur – baunasprettur frá Vaxa
  • Bearnaise sósa – heimatilbúin eða keypt

Aðferð

  1. Skerið laukinn í þunnar sneiðar og saxið hvítlaukinn, steikið upp úr smjöri þar til orðið mjúkt og gott.
  2. Skerið sneið af súrdeigsbrauðinu og steikið á báðum hliðum upp úr smjöri.
  3. Setjið þunnt skorið nautakjöt á pönnuna í litla hrúu í því magni sem þið viljið setja á eina brauðsneið. Setjið smjörsteiktan lauk yfir kjötið og ostsneið yfir. Setjið lok á pönnuna og látið osturinn bráðna yfir kjötinu.
  4. Smyrjið brauðsneiðina með mæjónesi og setjið vel af klettasalati á brauðið og tómatsneiðar.
  5. Setjið steikta nautakjötið yfir, toppið með bernaise sósu og sprettum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Steikarsamloka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5