Grísalund í beikon og gráðostamarineringu
Þetta er svona matur sem er sumar í hverjum bita fyrir mér. Lætur manni líða eins og það sé allavega 17 gráður úti, sól og logn, alveg sama hvernig veðrið er í raun og veru.
Grísalundin er marineruð með gráðosti og vafin í beikon sem heldur kjötinu extra safaríku á grillinu og gefur djúpt og salt bragð sem passar svo vel með milda svínakjötinu. Kjötið helst bleikt og mjúkt að innan verður útkoman algjör lúxus ✨
Með hunangssinneps kartöflusalati og ríkri sveppa og timjansósu verður þetta svo fullkomin máltíð fyrir sumarkvöld, helgarmat eða þegar mann langar að gera eitthvað aðeins meira „special“ án þess að standa endalaust í eldhúsinu.
Þetta er svona réttur sem lítur út fyrir að hafa tekið miklu meiri vinnu en hann gerði í raun og allir elska að borða.








Grísalund í beikon og gráðostamarineringu
- 600 g Grísalund í beikon og gráðostamarineringu frá SS
- Hunangssinneps Kartöflusalat
- Sveppa og timjansósa
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa kartöflusalatið samkvæmt leiðbeiningum hér.
- Gerið því næst sósuna samkvæmt leiðbeiningum hér.
- Setjið kjarnhitamæli í grísalundina.
- Grillið grísalundina á grillið þar til kjarnhit nær 62°C. Þetta tók u.þ.b. 15 mín hjá mér. Mikilvægt er að leyfa kjötinu að jafna sig í u.þ.b. 10 mín áður en það er skorið í sneiðar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












