Þessar kjúklingavefjur eru alveg dásamlega góðar og svo einfaldar að útbúa! Þær eru fylltar með reyktri kjúklingabringu frá SS, fersku grænmeti, avókadó, sýrðum rauðlauk og ótrúlega góðu chillí mæjó sem gefur þeim fullkomna blöndu af sætu, sterku og fersku bragði.
Reykta kjúklingabringan gefur vefjunum einstaklega gott bragð og passar svo vel með mjúku avókadóinu, stökku rauðkálinu og sýrða rauðlauknum. Chilí-majóið setur svo punktinn yfir i-ið!
Þetta er frábær hugmynd að fljótlegum og góðum hádegismat, léttum kvöldmat eða nesti. Vefjurnar eru bæði ferskar, matarmiklar og svo girnilegar! 😍



Kjúklingavefjur með spicy mæjó og avocadó
- Vefjur
- Reykt kjúklingabringa – álegg frá SS
- Chillí mæjó
- ½ Avocadó
- Ferskt rauðkál
- Sýrður rauðlaukur
- Klettasalat
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa chillí mæjó samkvæmt uppskrift.
- Setjið chillí mæjó á vefjuna og setjið svo 4 sneiðar af kjúklingabringu álegginu.
- Skerið avocadó í sneiðar og setjið á vefjuna ásamt smátt söxuðu fersku rauðkáli, sýrðum rauðlauk og klettasalati.
- Rúllið vefjunum upp, berið fram með meira chillí mæjó ef þið viljið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar







