Linda Ben

Ljúffengt sveppa risotto

Recipe by
45 mín
| Servings: 6 manns

Ljúffengt sveppa risotto þú munt elska!

Risottóið hentar mjög vel sem forréttur, það er létt en er á sama tíma mjög bragðmikið og áferðin rík. Þessi uppskrift miðast við forrétt fyrir sex manns eða sem aðalréttur fyrir tvo.

Rétturinn er einfaldur að gera, byrjað er á því að elda sveppina og laukinn sér inn í ofni, á meðan er risottoið eldað á pönnu upp úr hvítvíni og kjúklingasoði.

Ljúffengt sveppa risotto

Ljúffengt sveppa risotto

Ljúffengt sveppa risotto

Ljúffengt sveppa risotto

Ljúffengt sveppa risotto

Ljúffengt sveppa risotto

Ljúffengt sveppa risotto

  • 500 g kastaníu sveppir (má líka blanda saman við portobello sveppi)
  • 1 laukur (a.t.h. skipta í tvennt, notaður 2x í uppskriftinni)
  • 100 g smjör (a.t.h. skipta í tvennt, notaður 2x í uppskriftinni)
  • U.þ.b. 4 msk trufflu olía (a.t.h. skipta í tvennt, notaður 2x í uppskriftinni)
  • ferkst timjan
  • 3 ½ dl risotto hrísgrjón
  • 2 dl hvítvín (gott að nota Chardonnay)
  • 1000 ml vatn
  • 3 tsk kjúklingakraftur frá Oscar
  • 1 dl rifinn parmesan ostur (meira til að bera fram með)

Aðferð:

Aðferð má einnig sjá sem myndband í highlights á Instagraminu mínu Instagram.com/lindaben

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
  2. Skerið sveppina niður í sneiðar og setjið á bökunarplötu með smjörpappír.
  3. Skerið laukinn í helming, skerið annan helminginn niður í þunnar sneiðar og dreifið yfir sveppina á bökunarplötunni.
  4. Bræðið smjörið og hellið yfir sveppina og laukinn, hellið einnig 2 msk af trufflu olíu yfir, klippið niður ferskt timjan og dreifið yfir. Bakið inn í ofni i 25 mín eða þar til sveppirnir og laukurinn er orðinn mjúkur í gegn.
  5. Setjið 2 msk af trufflu olíu á pönnu og stillið á meðal hita.
  6. Skerið hinn helminginn af lauknum smátt niður og steikið þar til hann er byrjaður að mýkjast.
  7. Setjið þá hrísgrjónin út á pönnuna og steikið í 1 mín. Bætið þá hvítvíninu út á og steikið þar til mesti vökvinn er gufaður upp, hrærið stanslaust í. Bætið þá 250 ml vatni út á ásamt 1 tsk af kjúklingakrafti, hrærið stanslaust í og leyfið að malla þar til mest allur vökvinn er gufaður upp. Endurtakið þar til búið er að setja 1000 ml af vatni og 3 tsk af kjúklingakrafti, þá ættu hrísgrjónin einnig að vera orðin mjúk og góð.
  8. Rífið parmesan ost niður og bætið út á risottoið, hrærið öllu saman.
  9. Setjið 2/3 af sveppunum og lauknum út á, ásamt restinni af smjörinu og blandið saman.
  10. Skiptið risottoinu á milli diska, setjið restina af sveppunum og lauknum yfir, ferskt timjan og rífið parmesan ost yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Ljúffengt sveppa risotto

Ekki það sem þú varst að leita að? Skoðaðu þá þessar uppskriftir:

Ferskt salat með burrata osti og hráskinku á tvo vegu

Ofnbakaður brie með brómberja toppi

Einfaldur og afar ljúffengur humar í hvítlauks smjöri.

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5