Linda Ben

Safarík kalkúnabringa í hátíðarmarineringu með appelsínu og dijon

Recipe by
24 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Lindsay

Dásamlega ljúffeng og safarík kalkúnabringa í bragðmikilli hátíðarmarineringu með appelsínu, dijon-sinnepi og rifsberjahlaupi.

Marineringin er einstaklega einföld í framkvæmd en gefur kalkúninum dásamlegt bragð. Appelsínubörkurinn gefur ferskan og jólalegan keim, rifsberjahlaupið ljúffenga sætu og kalkúnakryddið frá Pottagöldrum bindur öll brögðin einstaklega vel saman.

Mér finnst best að útbúa marineringuna daginn áður og leyfa kalkúnabringunni að marinerast yfir nótt. Þannig er líka hægt að minnka aðeins stússið í eldhúsinu á sjálfum hátíðardeginum.

Ég ber kalkúninn fram með dásamlega djúsí kalkúnafyllingu með döðlum og ljúffengri rjómalagaðri kalkúnasósu. Einstaklega góð samsetning sem skapar ómótstæðilega hátíðarmáltíð fyrir alla fjölskylduna.

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Safarík kalkúnabringa í hátíðarmarineringu með appelsínu og dijon

  • Kalkúnabringa
  • ‘2 msk dijon sinnep
  • 1 msk rifsberjahlaup
  • 1 msk balsamikedik
  • 1 msk kalkúnkrydd frá Pottagöldrum
  • Börkur af 1 lítilli appelsínu
  • Salt

Aðferð:

  1. Þerrið kalkúnabringuna með eldhúspappír og setjið hana í fat.
  2. Blandið saman dijon sinnepi, balsamikediki og rifsberjahlaupi, kalkúnakryddi, appelsínuberki og salti. Hrærið saman.
  3. Smyrjið marineringunni jafn yfir alla kalkúnabringuna, setjið matarfilmu yfir fatið og látið marinerast í minnst klukkutíma eða yfir nótt.
  4. Stillið ofninn á 165ºC. Setjið kjöthitamæli inn í miðja þykkasta hluta bringunnar og bakið bringuna þangað til kjarnhitastig mælist 72ºC.
  5. Takið kalkúnabringuna úr ofninum og leyfið henni að hvíla í 15–20 mínútur áður en hún er skorin niður.
  6. Geymið soðið sem myndast við eldunina og nýtið það í kalkúnasósuna.

Kalkúnafylling með döðlum

Sjá uppskrift hér: https://lindaben.is/recipes/ljuffeng-kalkunafylling-med-dodlum/

Ljúffeng kalkúnassósa

Sjá uppskrift hér: https://lindaben.is/recipes/dasamleg-rjomalogud-kalkunasosa/

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Kalkúnabringa í appelsínumarineringu

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5