Cointreau trönuberja kokteillinn er eins góður og hann er fallegur. Fágaður drykkur í jólabúningi.
Cointreau trönuberja kokteill
- 6 cl Cointreau
- 3 cl lime safi
- nokkur trönuber
- kanilstöng
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni fyrir utan kanilstöngina í kokteilhristara ásamt klökum. Hristið vel og hellið í glasið.
- Skreytið með kanilstöng.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: