Espresso Martini er klassískur kokteill sem á alltaf vel við.
Espresso Martini Kokteill
- 50 ml Vodka
- 25 ml Galliano Vanilla
- 1 mjög kallt Espresso skot
- 25 ml sýróp
Aðferð:
- Setjið klaka í glösin á meðan kokteillinn er hristur.
- Setjið öll innihaldsefni í kokteil hristara og hristið mjög vel.
- Takið klakana úr glösunum og hellið kokteilnum í glösin.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: