Þessi marinering er virkilega góð og einföld að útbúa. Hægt er að nota hana á hvaða lambakjöts part sem er, hvort sem það er læri, hryggur eða annað.
Ég mæli með að vakna snemma og skella marineringunni strax á lærið og leyfa brögðunum að blandast vel saman við kjötið.
Þegar kjötið bakast þá myndast stökk himna utan um það sem er guðdómlega góð!
Lambahryggur í sinnepsmarineringu
- 1 stór lambahryggur
- 100 g Mailie dijon sinnep (hálf krukka)
- 8 hvítlauksgeirar
- 1 dl ólífu olía
- 2 msk ferskt rósmarín, smátt skorið
- Sítrónusafi úr ½ sítrónu
- Pipar
- Salt
Aðferð:
- Takið hrygginn úr ísskáp að morgni til.
- Blandið sinnepinu, ólífu olíunni, sítrónu safanum og piparnum saman í skál.
- Skerið niður hvítlaukinn og rósmarínið smátt niður og setjið í skálina.
- Skerið göt í fituna á hryggnum með nokkra cm millibili.
- Leggið plastfilmu á borð, plastfilman þarf að vera það stór að hún vefjist 1x utan um hrygginn, langsum. Leggið hrygginn á plastfilmuna, fituna niður.
- Setjið 1/3 af marineringunni á hrygginn og dreifið vel úr, snúið hryggnum við og setjið restina af marineringunni á fituhliðina á hryggnum og reynið að setja marineringu vel ofan í götin.
- Lokið hryggnum með plastfilmunni, gæti þurft meira af plastfilmu svo marineringin leki ekki út.
- Leyfið hryggnum að marinerast helst frá morgni til kvölds en allavega í 3 tíma (ef tími gefst ekki í það þá er það í lagi en það verður þá minna bragð af marineringunni í kjötinu sjálfu).
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C,
- Takið kjötið úr plastfilmunni og setjið það í ofnskúffu eða bakka. Setjið kjöthitamæli í mitt kjötið (á þverhlið) og eldið þangað til kjarnhitastig nær 58°C.
- Mikilvægt er að láta kjötið standa við stofuhita í 10-15 mín áður en það er skorið.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Öll hráefni í þessari færslu fást í Kosti
Okkur hér á mínu heimili fannst þessi matreiðsla mjög góð 🙂
Frábært, gaman að heyra! Takk fyrir að láta vita <3