Þessi réttur er innblásinn af klassískri franskri bistro matargerð þar sem einföld hráefni fá að njóta sín. Safaríkur kjúklingur í silkimjúkri hvítvínsrjómasósu með hunangssinnepi er mildur réttur sem er á sama tíma djúpur og ótrúlega góður.
Þetta er svona réttur sem er mjög þægilegt að elda, ekkert flókið og allt eldað á einni pönnu svo allt leirtau sem þarf að ganga frá eftir matseldina er í algjöru lágmarki. Þessi réttur hentar við hvaða tilefni sem er, hvort sem það er hversdags, um helgar, fyrir matarboðið. Hann hentar einfaldlega bara alltaf þegar þú vilt einfaldan en góðan mat.
Hvítvínið gefur sósunni ferskleika (allt alkahól gufar upp svo allir geta notið), sinnepið gefur dýpt og hunangið milda sætu sem bindur allt saman.
Það er svo um að gera að nota sama vínið í sósuna og í glasið, það er lítið smáatriði sem gerir mikinn mun og gerir upplifunina ennþá skemmtilegri.
Meðlæti sem passar fullkomlega með þessum rétti.
- Ofnbakaðar kartöflur eða kartöflumús
- Hrísgrjón eða ferskt pasta
- Grænt salat með vinaigrette
- Smjörsteikt rósakál með smá salti
- Smjörsteiktur aspas með smá salti
Ef þið viljið þá getið þið skipt kjúklingabringum út fyrir kjúklingalæri fyrir enn safaríkari útgáfu. Það má bæta sveppum út í sósuna. Þeir eru þá steiktir með hvæitlauknum.
Sósan er líka frábær með kalkún eða svínalund.





Kjúklingabringur í hvítvínsrjómasósu eins og á alvöru frönsku bistrói
- 3–4 kjúklingabringur
- Salt og pipar
- 1 msk smjör
- 1 msk ólífuolía
- 2-3 hvítlauksgeirar
- 2 dl þurrt hvítvín ég nota Adobe reserva sauvignon blanc
- 3 dl rjómi
- 2 tsk Oscar kjúklingakraftur
- 1 msk Dijon-sinnep
- 1 msk hunang
- Fersk steinselja
Aðferð:
- Kryddið kjúklingabringurnar vel með salti og pipar.
- Hitið smjör og ólífuolíu á stórri pönnu. Steikið kjúklinginn á miðlungshita þar til hann er fallega gylltur á báðum hliðum og eldaður í gegn. Takið af pönnunni og leggið til hliðar.
- Rífið hvítlaukinn út á pönnuna og steikið í nokkrar sekúndur, varist að brenna hann.
- Hellið hvítvíninu út á pönnuna og leyfið því að malla í 2–3 mínútur svo alkóhólið gufi upp og bragðið þéttist.
- Bætið rjóma, kjúklingakrafti, sinnepi og hunangi út í. Hrærið vel saman og leyfið sósunni að malla þar til hún þykknar örlítið.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Setjið kjúklinginn aftur út í sósuna og látið malla í 1–2 mínútur svo allt blandist vel.
- Toppið með ferskri steinselju og berið fram með því grænmeti sem þér finnst best, ég var með steikt rósakál og aspas.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar









