Linda Ben

Örlítið hollari súkkulaðibita kökur

Recipe by
Cook: 10-12 mín | Servings: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Örlítið hollari súkkulaðibita kökur

Ást mín á súkkulaðibita kökum er í algjöru hámarki þessa dagana, heilsu minnar vegna varð ég að finna örlítið hollari útgáfu af þessu gúmmulaði, án þess að það hefði áhrif á bragðið.

Þessi uppskrift er einmitt þannig, akkurat eins og góðar súkkulaðibita kökur eiga að vera, nema úr örlítið hollari innihaldsefnum, fullkomið ef þú spyrð mig!

Örlítið hollari súkkulaðibita kökur Örlítið hollari súkkulaðibita kökur Örlítið hollari súkkulaðibita kökur Örlítið hollari súkkulaðibita kökur

Örlítið hollari súkkulaðibita kökur

  • 1 ½ dl kókosolía
  • 2 ¼ dl púðursykur
  • 1 dl döðlusykur
  • 2 egg
  • 1 tsk vanilludropar
  • 5 dl hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 1 dl grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 100 g dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Hrærið saman sykur og kókosolíu, bætið svo einu eggi út í í einu og hrærið vel á milli. Því næst bætiði vanilludropum út í.
  2. Bætið hveiti, lyftidufti, salti saman við ásamt grískri jógúrt, blandið varlega saman við.
  3. Skerið súkkulaðið niður í grófa bita og bætið úr í, blandið saman með sleikju.
  4. Setjið deigið inn í ísskáp og kælið það í 2-3 tíma eða yfir nótt, eftir því hvað hentar þér best.
  5. Kveikjið á ofninum og stillið á 190°C. Notið matskeið til að skammta hverja köku, mótið kúlu með lófunum og raðið á smjörpappír, passið að hafa gott bil á milli þar sem kökurnar fletjast út í ofninum. Bakið í 10-12 mín.

Örlítið hollari súkkulaðibita kökur

Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér svo vænt um að heyra hvernig smakkast! Skildu endilega eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben

Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!

Ykkar, Linda Ben

2 Reviews

  1. Sigrún

    Sæl

    Hvað púðursykur ert þú að nota

  2. Linda

    Hæhæ, Ég nota annað hvort Kötlu eða Dansukker 🙂

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5