Linda Ben

Stracciatella ostaköku fylltar vatnsdeigsbollur

Recipe by
1 kist og 30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 15-18 bollur

Vatnsdeigsbollur hljóma oft flóknari en þær eru í raun. Margir eru smeykir við að baka þær, hræddir um að þær falli saman, verði blautar að innan eða lyftist ekki rétt. Sannleikurinn er sá að vatnsdeig er eitt af einfaldari deigum þegar þú þekkir nokkur lykilatriði.

Það mikilvægasta við vatnsdeigsbollur er:

  • að eggjum sé bætt út í smátt og smátt, þar til áferðin er rétt

  • að bollurnar séu allar svipað stórar
  • að ofninn sé alls ekki opnaður of snemma, bollurnar þurfa gufu og hita til að pöffast og verða holar að innan

  • að taka þær ekki of snemma út úr ofninum, þær verða að vera bakaðar í gegn.

Þegar passað er upp á þessi atriði verða þær léttar, fallega gylltar og fullkominn grunnur fyrir alls kyns fyllingar.

Í þessari uppskrift eru bollurnar fylltar með silkimjúkri og dásamlegri stracciatella ostakökur. Toppaðar með mjúku súkkulaði og söxuðu súkkulaði.

Stracciatella vatnsdeigsbollur

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Stracciatella vatnsdeigsbollur

Stracciatella vatnsdeigsbollur

Stracciatella vatnsdeigsbollur

Stracciatella vatnsdeigsbollur

Stracciatella ostaköku fylltar vatnsdeigsbollur

Vatnsdeigsbollur

  • 125 g smjör/smjörlíki
  • 1 msk sykur
  • 275 ml vatn
  • 170 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 2 – 3 1/2 egg (magn fer eftir stærð eggja. Til að setja 1/2 egg, setjið 1 egg í skál, hrærið og notið helminginn)

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
  2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
  3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
  4. Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
  5. Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
  6. Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.

Stracciatella ostaköku fylling

  • 200 g rjómaostur
  • 180 g Stracciatella grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
  • 300 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 100 g flórsykur

Mjúkur súkkulaði toppur

  • 200 g súkkulaði – skipt í 150 g og 50 g
  • 100 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa toppinn með því að bræða saman 150 g súkkulaði og 100 ml rjóma í potti yfir vægum hita, leyfið blöndunni að kólna að stofuhita.
  2. Setjið rjómaost, stracciatella jógúrt og flórsykur saman í skál og hrærið öllu saman.
  3. Þeytið rjómann og blandið honum svo út í jógúrt blönduna varlega með sleikju.
  4. Skerið bollurnar í helminga og fyllið þær af stracciatella ostakökunni. Lokið bollunum og setjið brædda súkkulaðið yfir.
  5. Saxið súkkulaðið og dreifið því yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Stracciatella vatnsdeigsbollur

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5