Lasagna er klassískur réttur sem öll fjölskyldan elskar. Auðvelt er að lauma smá grænmeti í þennan rétt án þess þó að nokkur taki eftir því, en það er einmitt þannig í þessari uppskrift.
Hvíta ostasósan gerir það að verkum að lasagnað er sérstaklega djúsí og lystugt, algjör unaður!
Unaðslega gott djúsí lasagna með hvítri ostasósu
Kjötsósa – Uppskrift:
- 1 pakki nautahakk
- 2 gulrætur
- 100 g sveppir
- 1 shallot laukur
- 1 krukka (680 g) Tómat og basil pastasósa
Aðferð:
- Skerið lauk, sveppi og gulrætur niður og steikið.
- Steikið hakkið á pönnununa og steikið.
- Setjið sósuna á pönnuna.
- Kryddið með salt og pipar eftir smekk og leyfið sósunni að malla á vægum hita þangað til hún hefur þykknað.
Hvít ostasósa – Uppskrift:
- 150 g rifinn cheddar ostur
- ½ blaðlaukur
- ½ líter mjólk
Aðferð:
- Skerið blaðlaukinn smátt niður.
- Setjið olíu í pott og steikið laukinn við mjög lágann hita í 20-30 mín. Það er gert til þess að ná fram sæta og góða bragðinu í lauknum.
- Hellið mjólkinni út á laukinn og maukið hann með töfrasprota.
- Setjið helminginn af ostinum út í sósuna.
- Hitið sósuna þangað til osturinn bráðnar og sósan fer að þykkna.
- Kryddið með pipar eftir smekk.
Þar að auki þarf:
- Lasagnaplötur
Aðferð:
- Notið 20×20 cm eldfastmót, stillið ofninn á 200°C.
- Byrjið á því að setja kjötsósuna í botninn, setjið lasagnaplötur yfir og hvítu ostasósuna loks yfir.
- Endurtakið þrisvar sinnum í viðbót.
- Dreifið afganginum af ostinum yfir lasagnað.
- Bakið í ofninum í um það bil 45 mín.
- Leyfið lasagnanu að kólna svolítið áður en þið skerið í það svo það haldi lögun þegar það er sett á diskinn.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: