Sem mikill Sex and the City aðdáandi verð ég að segja að þessi drykkur á sérstakan stað í hjarta mér. Mér líkar hann vel þar sem hann bragðgóður en er ekki of sætur.
Þessi Cosmopolitan uppskrift er miðað við tvö glös.
Cosmopolitan
- 8 cl Russian Standard Vodki
- 6 cl Cointreau
- Safi úr ½ lime
- 3 cl trönuberja safi
- klakar
Aðferð:
- Setjið klaka í kokteilglösin.
- Öllum innihaldsefnum og klökum er hellt í kokteilhrisstara og drykkurinn hrisstur vel.
- Fjarlægið klakana úr glösunum og hellið drykknum í glösin.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njóttu vel!
Þín, Linda Ben
Category: