Þetta maísbaunasalat er ljúffengt meðlæti sem passar með fjöldanum öllum af mat, til dæmis lambakjöti og kjúkling.
Maísbaunasalat
Sósa
- 1/2 dl kaldpressuð jómfrúar ólífu olía
- 3 msk hvítvínsedik
- 2 msk majónes
- 1 hvítlauksgeiri
- 1 tsk paprikukrydd
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk pipar
Salat
- 1/2 rauðlaukur
- 1/2 agúrka
- 1/2 – 1 ferskur jalapenó
- 1 gulrót (meðalstór eða 2 stk litlar)
- 2 dósir maísbaunir
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa sósuna með því að setja í stóra skál ólífu olíu, hvítvínsedik, majónes, rifinn hvítlauksggeira, paprikukrydd, salt og pipar. Hrærið saman.
- Ofan í sósuna bætiði smátt sneiddum rauðlauk, agúrkubitum, sneiddum jalapenó, rifinni gulrót og maísbaunum, hrærið saman.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: