Þessi sósa passar vel með lang flestum mat, til dæmis taco, með kókos risarækjum eða kjúkling.
Hún rífur örlítið í en hversu mikið fer eftir því hversu mikið er sett af sriracha sósunni.
Í grunninn er þetta gríska jógúrtið frá Örnu en mér finnst áferðin af því henta lang best í sósur og vel það alltaf fram yfir majónes eða annað.
Jógúrt sriracha sósa
- 1 lítil dós grískt jógúrt frá Örnu
- 2-3 msk sriracha sósa (2 fyrir milda, 3 fyrir sterka sósu)
- Safi úr 1 lime
- 1 tsk karrý
- 1 lúka ferskt kóríander
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni saman í blandara og blandið saman.
Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér svo vænt um að heyra hvernig smakkast! Skildu endilega eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Ykkar, Linda Ben
Þessi færsla er kostuð en það hefur ekki áhrif á frásögn mína.
Category: