-
Rauðrófu smoothie
5 mínRauðrófu smoothie er með því hollara sem þú lætur ofan í þig. Þessi smoothie saman stendur af appelsínu, gulrót, forsoðinni rauðrófu engifer, banana og svo hafraskyri til að gefa prótein og mjúka áferð. Smoothie-inn er fullur af góðri næringu og er virkilega bragðgóður og einstaklega fallegur. Rauðrófur hafa lengi verið þekktar fyrir hversu hollar þær […]
Recipe by Linda -
Hollar og próteinríkar bakaðar mini ostakökur
30 mínÞessar bökuðu ostakökur eru alveg ótrúlega góðar og ég er ekki viss um að þú myndir fatta að þær væru hollar ef þú myndir smakka. Þær eru nefninlega alveg stútfullar af próteini innihalda engan sykur. Ostakökurnar eru silkumjúkar og áferðin er nánast alveg eins og á venjulegum bökuðum ostakökum. Þær innihalda aðeins 5 innihaldsefni, það […]
Recipe by Linda -
Uppáhalds pizzan
20 mínÞessa pizzu gerum við alltaf þegar við erum með pizzakvöld. Hún er alveg ótrúlega djúsí og mjög bragðmikil. Þetta er í mínum huga algjörlega klassísk pizza og í augljóslega í miklu uppáhaldi hjá okkur. Allir sem koma hingað í pizzu fá að smakka þessa og við fáum alltaf mikið lof fyrir hana. Eins og með […]
Recipe by Linda -
Heimabakað heilhveitibrauð sem er svo gott með smjöri, osti og sultu
13 klstHeimabakað heilhveitibrauð sem er svo einfalt og gott. Er eitthvað betra en nýtt heimabakað brauð með smjöri, osti og sultu? Brauðið ennþá smá volgt úr ofninum svo smjörið bráðnar ofan í það, toppað með góðum osti og ljúffengri sultu… namm! Þetta heimabakaða brauð er ótrúlega einfalt og þægilegt. Það þarf ekkert að hnoða það eða […]
Recipe by Linda -
Kaffikaramelluskyr ískaffi
5 mínÉg hreinlega elska nýja kaffiskyrið frá Örnu Mjólkurvörum og Te og kaffi (ég borða eina dós helst á hverjum degi) og það er svooo gott að blanda því saman við smá mjólk til að þynna það og hella því yfir kaffi með klökum! 🤤🤤 Próteinríkt, nærandi og einstaklega ljúffengt ískaffi sem þú bara verður að […]
Recipe by Linda -
Ljúffengur rjómaís án sykurs
12 klstHér höfum við dásamlegs ljúffengan rjómaís. Hann inniheldur engan sykur heldur er hann gerður sætur með sætuefnunum frá Good Good sem er svo ótrúlega sniðugt. Sætuefnið virkar alveg eins og sykur, þ.e. maður getur skipt því út fyrir sykur í jöfnum hlutföllum í hvaða uppskrift sem er og þannig gert hvað sem er sykurlaust. Rjómaísinn […]
Recipe by Linda -
Þrefalt súkkulaði bollakökur (v)
1 1/2 klstHér höfum við ljúffengar súkkulaðibollakökur sem eru fylltar með dökku súkkulaði og toppaðar með súkkulaðismjörkremi. Bollakökurnar innihalda engar mjólkurafurðir né egg og eru því vegan. Þrefalt súkkulaði bollakökur 200 g hveiti 45 g kakóduft 1 ½ tsk matarsódi ½ tsk salt 100 g sykur 100 g púðursykur 250 ml hafrajógúrt frá Veru Örnudóttir með súkkulaði […]
Recipe by Linda -
Epla og karamellukaka
1 1/2 klstEpla og karamellukaka með hvítsúkkulaðikremi er einstaklega ljúffeng og á vel við á þessum árstíma. Það er bara fátt betra en góð eplakaka á haustin. Þessi eplakaka er ólík öðrum að því leiti að þetta er smá afbrigði af eplaköku og gulrótaköku. Hún er með ljúffengu kanilbragði sem passar svo vel með eplunum og karamellukurlið […]
Recipe by Linda -
Blaberja og hnetusmjörs chiagrautur
10 mínÞessi bláberja og hnetusmjörs chiagrautur er eitthvað sem ég búin að vera borða núna á hverjum morgni áður en ég fer í ræktina, alveg frá því að haustjógúrtið kom í búðir. Grauturinn gefur mér alveg ótrúlega mikla og góða orku fyrir daginn, er dásamlega bragðgóður og hollur. Það er svo einfalt að smella honum saman […]
Recipe by Linda -
Mexíkósk kjúklingasúpa
25 mínÞessi kjúklingasúpa er æðislega bragðgóð og mettandi. Það tekur enga stund að smella í hana eða um það bil 25 mín og er ótrúlega einföld. Maður byrjar á því að steikja lauk, papriku og gulrætur upp úr olíu og bætir kryddunum út á. Síðan bætir maður salsa sósu út í, vatni, kjúklingakrafti og maukar svo […]
Recipe by Linda -
Súkkulaði espresso marengsrúlluterta
1 klstHér höfum við alveg dásamlega góða súkkulaði espresso marensrúllutertu sem á alveg örugglega eftir að slá í gegn hjá þér sama hvert tilefnið er. Þetta er til dæmis frábær kaka til að bera fram í veislum, vinkonuhittingum, sunnudags brunch-inum eða til að taka með í föstudagskaffið í vinnunni. Espresso-inn í marengsnum virkar þannig að hann […]
Recipe by Linda -
Einfalt basil pestó pasta með kjúkling og serrano skinku
20 mínVirkilega einfalt og fljótlegt basil pestó pasta með kjúkling og serrano skinku sem er svo ótrúlega bragðgott! Maður byrjar á því að marinera kjúklinginn í pestóinu með sterku dijon sinnepi og steikir það svo rólega á pönnu og bætið við hvítlauk. Ef þú hefur ekki tíma í að láta kjúklinginn marinerast þá steikir þú hann […]
Recipe by Linda -
Eggjabrauð með súkkulaði kotasælu
15 mínHollt og próteinríkt eggjabrauð (french toast) með sykurlausri súkkulaði kotasælu. Ef þú ert að þrá eitthvað ofur gott og djúsí ofan á brauð sem er samt hollt og próteinríkt þá mæli ég með því að þú prófir að hræra saman sykurlausa súkkulaðismjörinu frá Good Good og kotasælu! Það kann að hljóma smá fuðrulegt í fyrstu […]
Recipe by Linda -
Hafrabitar með súkkulaði
30 mínHafrabitarnir eru trefja og orkuríkt millimál eða nesti. Þeir innihalda ekki hvítan sykur heldur hunang sem gerir þá sæta og góða á bragðið en suðusúkkulaðið gerir þá svo algjörlega ómótstæðilega. Það er upplagt að taka þá með í göngutúrinn eða fjallgönguna. Það er alveg öruggt að þeir munu slá í gegn hjá bæði fullorðnum og […]
Recipe by Linda -
Hugmyndir að einföldu og bragðgóðu nesti
5 mínNúna eru skólarnir farnir af stað aftur og margir að huga að nestishugmyndum, því fannst mér upplagt að deila með ykkur nokkrum skotheldum samloku uppskriftum sem slá alltaf í gegn hér á heimilinu, bæði samlokum og léttara nesti sem henta sem millimál. Hugmyndir að einföldu og bragðgóðu nesti Samloka með spægipylsu Samlokubrauð Smjör Spægipylsa […]
Recipe by Linda -
Þorskhnakkar með mexíkóskuívafi
30 mínHér höfum við svakalega góða þorskhnakka sem eru bakaðir í bragðmiklu maíssalsa og hvítlaukshryddosti. Þessi réttur er algjör bragðsprengja og einstaklega djúsí. Hugmyndin af þessum rétti vaknaði þegar ég smellti í þennan hérna rétt um daginn. Ég er svo búin að vera prófa mig áfram með þessa hugmynd undanfarið og hef núna fullkomnað þennan rétt. Það […]
Recipe by Linda -
Banana og gulrótarbrauð (v)
1 klst og 15 mínÞetta bananabrauð er alveg dásamlega gott! Það er ólíkt öðrum bananabrauðum að því leyti að það inniheldur einnig gulrætur sem gera það ennþá mýkra og minnir svolítið á gulrótaköku. Það inniheldur engin egg eða mjólkurvörur og er vegan. Banana og gulrótarbrauð (v) 200 g spelt – skipt 50% gróft og 50% fínt (líka hægt að […]
Recipe by Linda -
Nágrannasæla
45 mínNágrannakona mín gaf mér að smakka um daginn eina bestu hjónabandssælu sem ég hef nokkurntíman smakkað! Hún er svolítið ólík örðum hjónabandssælum að því leiti að það er kókosmjöl í henni og súkkulaði. Uppskriftin hefur verið algjör klassík í fjölskyldunni þeirra í fjölda mörg ár og slær alltaf í gegn. Ég var ekki lengi að fá […]
Recipe by Linda -
Kjúklingalæri í ítalskri rjómasósu borin fram með kartöflumús
30 mínÞessi kjúklingalæri í ítalskri rjómasósu eru einstaklega djúsí og bragðgóð. Þetta er afar einfaldur og fljótlegur réttur. Innihaldsefnalistinn gæti þótt langur í fyrstu en þegar þið lesið hann yfir sjáiði að stór hluti af honum eru krydd. Maður byrjar á því að setja smjörið, laukinn, kryddin og sterka sinnepið í pott og steikir kjúklinginn upp […]
Recipe by Linda -
Bláberjasnúðar (v)
Bláberjasnúðar sem eru án eggja og mjólkurafurða sem bragðast einstaklega vel, eru dúnamjúkir og ljúffengir. Ég pældi mikið í því að kalla þessa uppskrift bláberjasnúningar í staðinn fyrir bláberjasnúða þar sem deigið er snúið saman og útbúinn einskonar snúinn snúður. Bragðið er eins sama hvernig snúðarnir eru rúllaðir upp, en mér finnst þetta snúna “messý” […]
Recipe by Linda -
Fetaosta Focaccia
Fetaosta Focaccia er einstaklega bragðgott og djúsí brauð sem erfitt er að standast. Focaccia brauðið er bakað í stóru formi með fullt af olíu og kryddum, toppað með ólífum, tómötum og salatosti. Brauðið er einstaklega mjúkt að innan með stökkri og bragðmikilli skorpu. Fetaosta Focaccia 400 ml volgt vatn 12 g þurrger 1 tsk sykur […]
Recipe by Linda -
Heimagerður rjómaís með kremkexi og salt karamellu
12 klstÞessi ofur ljúffengi rjómaís er eitthvað sem þú mátt alls ekki láta framhjá þér fara. Hann er fylltur með kremkexi og salt karamellu sem er algjörlega ómótstæðileg blanda. Kexið mýkist svolítið í ísnum og verður svo gott, salt karamellan leikur svo við bragðlaukana. Ísinn er alltaf best að gera með a.m.k. sólarhrings fyrirvara. Heimagerður […]
Recipe by Linda -
Nammismákökur
Nammismákökur 200 g smjör 250 g púðursykur 1 egg 1 eggjarauða 1 msk vanilludropar 1 tsk matarsódi 250 g hveiti 250 g Eitt Sett drumbar 150 g Síríus súkkulaðiperlur Aðferð: Setjið smjörið í skál ásamt púðursykri í skál og þeytið þar til létt og ljóst. Bætið saman við egginu og eggjarauðunni og þeytið. Bætið saman […]
Recipe by Linda -
Appelsínukryddlegið lambafile í tómat og maíssalsa
40 mínAppelsínukryddlögurinn frá SS er í alveg ótrúlega miklu uppáhaldi hjá mér en mér finnst kjötið verða alveg einstaklega bragðgott í þessum kryddlegi. Ég var því mjög glöð þegar ég sá að það er núna hægt að fá lambafile í þessum kryddlegi. Ég elska að grilla lambafile og bera það fram með hefðbundnu grill meðlæti, þ.e. […]
Recipe by Linda