-
Pistasíu pavlovur með jarðaberjum og súkkulaði
Pistasíu pavlovur með jarðaberjum og súkkulaði. Alveg dásamlega góðar pavlovur með ljúffengum rjóma með súkkulaði og jarðaberjum, toppaðar með pistasíu curd. Pistasíu curd er einskonar sulta eða mauk réttara sagt sem er sætt og bragðast alveg dásamlega! Pistasíu pavlovur með jarðaberjum og súkkulaði 6 eggjahvítur 3,5 dl sykur 2 tsk kornsterkja 1/8 tsk cream of […]
Recipe by Linda -
Grænmetis núðluréttur með rauðu karrímauki
20 mínGrænmetis núðluréttur með rauðu karrí mauki er ótrúlega góður og mjög fljótlegur réttur. Þessi réttur er alveg óvart vegan, ég hreinlega áttaði mig ekki á því fyrr en eftir á að ég hafði ekki notað neinar dýraafurðir í hann, sem er mjög jákvætt. Ég hef verið að vinna með meira grænmetisfæði hér heima og líkað […]
Recipe by Linda -
Salt karamellu White Russian kokteill
Salt karamellu White Russian kokteill er silki mjúkur og einstaklega bragðgóður. Hann hentar mjög vel sem eftirréttur (eða eftirdrykkur réttara sagt) eftir góða máltið. Hann inniheldur salt karamellu sem ég mæli með að gera frá grunni en sú karamella er bara svo ótrúlega góð, en að sjálfsögðu er hægt að kaupa hana tilbúna líka. Þú […]
Recipe by Linda -
Uppskriftabókin Kökur eftir Lindu Ben er komin í sölu
Uppskriftabókin Kökur eftir Lindu Ben Kökur er mín fyrsta uppskriftabók en í henni leynast allskonar uppskriftir af kökum og bakkelsi sem flest allir ættu að geta leikið eftir. Í öll þessi ár sem ég hef haldið úti þessari uppskriftasíðu hef ég haft það bak við eyrað að einn daginn myndi ég gefa út uppskriftabók. Nýtt […]
Recipe by Linda -
Klessuleg piparköku formkaka
1 klstKlessuleg piparköku formkaka. Einstaklega góð formkaka sem minnir mikið á piparkökur. Kakan er blaut, klessuleg og bráðnar í munninum. Kremið er sætur rjómi sem passar einstaklega vel með piparkökubragðinu. Það eina sem vantar er heitt kakó með til að toppa jólafýlinginn sem ég mæli svo sannarlega með. Þessi kaka er sko sannarlega forskot á jólasæluna. […]
Recipe by Linda -
Mini pizzur fyrir alla fjölskylduna
25 mínMini pizzur fyrir alla fjölskylduna úr Hatting pizzabotnum er ótrúlega sniðugt og ljúffengir pizzabotnar. Botnarnir eru keyptir frosnir út í búð, þeir eru útflattir og alveg tilbúnir, mjög hentugt til þess að grípa í þegar tíminn er naumur þar sem það tekur enga stund að afþýða þá (u.þ.b. 5 mín). Ég smellti í pizzur um […]
Recipe by Linda -
Rauðvíns spagettí bolognese
30 mínRauðvíns spagetti bolognese. Þetta er skemmtileg útgáfa af hinum klassíska rétti en rauðvínið í sósunni skilar sér með kröftugu og dýpra bragði af sósunni. Annars er þetta afskaplega einfaldur réttur sem allir eiga að geta leikið sér með að galdra fram í eldhúsinu. Rauðvíns spagetti bolognese 250 g spagettí 500 g nautahakk Ólífu olía 1 […]
Recipe by Linda -
Kjúklinga enchiladas uppskrift
40 mínKjúklinga enchiladas Frábær réttur sem er ótrúlega bragðmikill, löðrandi í osti og gúmmulaði. Þú átt alveg örugglega eftir að elska þennan rétt. Það er best að nota foreldaðar kjúklingabringur og smella öllu saman á létt pönnu, þá tekur þetta enga stund. Það er auðvelt að búa til sína enchilada sósu og algjör óþarfi að fara […]
Recipe by Linda -
Kjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu
1 klst og 20 mínKjúklingur í ítalskri jógúrt marineringu. Æðisleg létt og bragðgóð marinering fyrir kjúklinginn. Kjötið verður alveg einstaklega mjúkt þegar það er marinerað í jógúrti, sérstaklega ef tími gefst til að láta kjötið marinerast vel og lengi. Hægt er að bera þennan rétt með því meðlæti sem þér finnst gott en ég mæli sérstaklega með þessu. Kjúklingur […]
Recipe by Linda -
Kanilsykurs bollakökur með glassúr
40 mínKanilsykurs bollakökur með glassúr. Þessi uppskrift samdi ég fyrst fyrir Fréttablaðið þegar ég fór í viðtal þar að tilefni komu uppskrifarbókar minnar sem er væntanleg í allar helstu búðir landsins eftir örfáar vikur. Þið getið lesið viðtalið hér Nú er komið að ég deili uppskriftinni með ykkur hér á uppskriftarsíðunni minni. Þetta eru ótrúlega góðar […]
Recipe by Linda -
Bleikur Martini
5 mínBleikur trönuberja martini er afskaplega bragðgóður kokteill. Til að fá sem allra besta kokteilinn þá er mikilvægt að kaupa sætan trönuberjasafa. Ef notaður er ósætur trönuberjasafi getur drykkurinn verið rammur. Gott gin er að sjálfsöfðu mikilvægt en annað sem er gott er að gera er að setja öll hráefnin inn í ísskáp um morguninn svo […]
Recipe by Linda -
Duck Confit í appelsínusósu með kartöflumús
1 klstDuck Confit í appelsínusósu með kartöflumús. Þetta er einfaldur en virkilega góður réttur sem kallar ekki á neina sérstaka hæfileika í eldhúsinu. Andalærin kaupir maður tilbúin í niðursuðudós, hljómar kannski ekki eins og veislumatur í fyrstu en það virkilega er það samt. Þetta er klassískur franskur réttur sem klikkar aldrei. Borið fram með ljúffengri appelsínusósu, […]
Recipe by Linda -
Ostafylltir ofnbakaðir sveppir
Ostafylltir ofnbakaðir sveppir er æðislegt meðlæti með öðrum mat, þeir eru svo góðir. Margir kannast við það að fylla sveppi með osti og grilla en færri sem gera þennan rétt yfir vetrarmánuðina. Það er alls ekki verra að baka þá inn í ofni og ekkert í þeirri fyrirstöðu að smella í þetta meðlæti hvenær sem […]
Recipe by Linda -
Litlar bláberja skyrköku pavlóvur
Litlar bláberja skyrköku pavlóvur er skemmtileg blanda af marengsköku og ostaköku. Ég blandaði saman rjóma og Örnu skyri með bláberja botni ásamt fleira gúmmulaði og setti ofan á litlar pavlovur, útkoman var hreint út sagt æðisleg! Það er leikur einn að smella í pavlóvur ef notast er við þessa uppskrift. Best þykir mér að láta […]
Recipe by Linda -
Epla og kanil skyr drykkur
5 mínEpla og kanil skyr drykkur með haustlegum blæ. Þessi skyr drykkur er bragðgóður og hollur. Epla og kanil skyr drykkur 200 g hreint skyr frá Örnu Mjólkurvörum ½ banani 2-3 döðlur 1 rautt epli 1 lúka möndlur ¼ tsk kanill Klakar Vatn Aðferð: Setjið í blandara og blandið þar til orðið að drykk. Ef þú prófar […]
Recipe by Linda -
Sætkartöflu quinoa salat
30 mínSætkartöflu quinoa salat hentar vel sem léttur kvöldmatur eða hádegismatur. Bragðgott, hollt og einfalt salat sem þú átt eftir að elska. Þetta er mjög þægilegur réttur að setja saman og upplagt að smella í þetta salat til dæmis í hádegismat ef það eru til afgangs sætar kartöflur frá kvöldinu áður. Möguleikar á mismunandi útfærslum nánast […]
Recipe by Linda -
Sjávarréttasúpan hennar mömmu
Sjávarréttasúpa þessi er fengin úr uppskriftabókinni hennar mömmu. Mamma hefur gert þessa súpu í mörg ár og hún stendur alltaf fyrir sínu, létt og ótrúlega bragðgóð. Endilega setjið út í hana það sjávarfang sem ykkur þykir best. Sjávarréttasúpa 400 g humar 400 g blandað sjávarfang 1 laukur 1 paprika 1 gulrót 2 msk koníak 1 […]
Recipe by Linda -
Oreo Crumbs bollakökur
1 klstOreo Crumbs bollakökur Æðislega góðar Oreo bollakökur þar sem notast er við Oreo Crumbs. Ofur létt Oreo krem með bollakökunum gerir þær ómótstæðilegar. Sjáðu IGTV myndband hvernig þú býrð til þessar bollakökur skref fyrir skref hér. Oreo Crumbs bollakökur 85 g mjúkt smjör 100 ml bragðlítil olía 2 ½ dl sykur 3 egg 2 tsk […]
Recipe by Linda -
Vöfflur með bláberjum, súkkulaði rjóma og saltri karamellu
Vöfflur með bláberjum, súkkulaði rjóma og saltri karamellu. Klassískar vöfflur með æðislegum súkkulaði rjóma, saltri karamellu og nóg af bláberjum. Algjört lostæti sem þú verður að smakka. Leynitrikkið til að fá vöfflurnar fallega brúnar er að setja örlítið kaffi út í deigið, það finnst ekki á bragðinu en hefur heilmikið að segja fyrir útlitið. Það […]
Recipe by Linda -
Einfalt hvítlauks humarpasta
Einfalt hvítlauks humarpasta sem er svo ótrúlega gott! Einfalt hvítlauks humarpasta 250 g Tagliatelle (ég spínat tagliatelle, sjá hér) 400 g skelflettur lítill humar Salt & pipar 1/4 tsk þurrkaður chillí 1 msk smjör 1 dós Allioli frá Chovi Sítrónubörkur Fersk steinselja Aðferð: Byrjið á því að sjóða pastað samkvæmt leiðbeiningum. Kryddið humarinn með salti&pipar […]
Recipe by Linda -
Kjúklingalæri elduð í einu fati
45 mínKjúklingalæri elduð í einu fati með sætum kartöflum, brokkoí og fullt af öðru grænmeti. Einstaklega bragðgóður og einfaldur réttur, allt eldað saman í einu fati sem er eldunaraðferð sem við svo mörg elskum. Brögðin blandast öll svo vel saman inn í ofninum, uppvaskið er í algjöru lágmarki og fyrirhöfnin líka. Kjúklingalæri elduð í einu fati […]
Recipe by Linda -
Bláberja límonaði – kokteill
5 mínBláberja límonaði kokteill sem er alveg hreint út sagt stórkostlega góður! Bláberja límonaði 1 lítið búnt af ferskri myntu 30 ml sykursíróp 1 dl Bláber 30 ml Vodka 200-250 ml límonaði Klakar Aðferð: Setjið myntu og bláber í kokteilhristara ásamt sykursírópi og vodka, kremjið myntuna og bláberin, hristið svo saman. Hellið í gegnum sigti ofan […]
Recipe by Linda -
Stökkt og bragðmikið kjúklingasalat með haustlegu yfirbragði
30 mínStökkt og bragðmikið kjúklingasalat með haustlegu yfirbragði. Það er einfalt að smella því saman og er afskaplega bragðgott. Stökkt og bragðmikið kjúklingasalat 6 úrbeinuð klúklingalæri Kjúklingakryddblanda 1 búnt grænkál 1 stk gulrót 1 stk rauð paprika 1 stk rautt epli 1 msk furuhnetur 1 dl fetaostur Hvitlaukssósa Aðferð: Kveikið á ofninum og stillið á 200°C og […]
Recipe by Linda -
Whiskey Crush kokteill
Æðislegur kokteill með djúpu, notalegu og haustlegu ívafi. Sykursíróp sem er í þessum kokteil er afskaplega einfalt að útbúa, maður setur einfaldlega jafn mikið af vatni og sykri í pott, hitar þar til sykurkornin hafa bráðnað og hellir á flösku og geymir inn í ísskáp, eitthvað sem allir kokteil aðdáendur eiga að eiga til í […]
Recipe by Linda