-
Skyrfylltar súkkulaðihjúpaðar döðlur
15 mínHér höfum við virkilega góðar skyrfylltar döðlur. Þær minna mikið á döðlur fylltar með hnetusmjöri sem ég veit að margir hafa prófað en eru próteinríkari og léttari. Skyrfylltar döðlur eru líka frábært snarl eða hollustunammi fyrir þá sem eru með hnetuofnæmi. Það er gott að hjúpa döðlurnar með súkkulaði, stökka súkkulaðiskurnin gerir ótrúlega mikið fyrir […]
Recipe by Linda -
Bláberjahafrabaka (án mjólkur og eggja)
1 klstHér höfum við alveg dásamlega góða bláberjahafraböku sem inniheldur engin egg eða mjólk og er vegan. Bláber og sítróna er alltaf svo sumarleg blanda fyrir mér. Það er alveg upplagt að smella í þessa ljúfu og ljúffengu sumarlegu böku á svona rigningar sumardögum eins og þessum. Þessi baka inniheldur merkilega lítið af sykri og mýktin […]
Recipe by Linda -
Grilluð portobello “steik”
25 mínHér höfum við virkilega góða portobello “steik” sem hentar vel sem aðalréttur eða sem meðlæti með öðrum mat. Systir mín borðar ekki kjöt og smellum við oft í þessa steik fyrir hana þegar við erum með kjöt í matinn fyrir aðra. Mér finnst hann svo góður að ég fæ mér hann yfirleitt líka sem meðlæti […]
Recipe by Linda -
Saltkaramellu pralín súkkulaðikaka
1 klst,,Þessi saltkaramellu pralín súkkulaðikaka er alveg sjúklega góð”, var eitthvað sem ég fékk endurtekið að heyra þegar ég bauð upp á hana í gær. Létta salt karamellu pralín smjörkremið smellpassar með dökku og mjúku súkkulaðikökunni. Þetta er algjörlega ómótstæðileg kaka sem ég er alveg viss um að öllum eigi eftir að líka við, hvort sem […]
Recipe by Linda -
Grilluð úrbeinuð kjúklingalæri með grilluðum maís “rifum”
1 klstNúna er rétti tíminn til að taka fram grillið og grilla eitthvað hollt og ljúffengt. Þessi uppskrift er æðislega góð. Ljúffengur kryddmarineruð kjúklingalæri og maís “rif” sem er kryddaður skorinn maís. Sósan er svo einstaklega ljúffeng köld kóríander sítrónu sósa sem smellpassar með grillmatnum. Ég er viss um að þér eigi eftir að líka vel […]
Recipe by Linda -
Ljúffengur espresso karamellu smoothie (v)
5 mínHér höfum við æðislegan espresso karamellu smoothie sem er fullur af hollum og góðum næringarefnum. Hann saman stendur meðal annars af frosnum banana, hnetusmjöri og vanillu próteini sem gerir áferðina einstaklega mjúka og “creamy”. Ljúffengur espresso karamellu smoothie (v) 1 frosinn banani 1 skot espresso 2 döðlur 1 msk hnetusmjör 2 skeiðar vanillu prótein 2 […]
Recipe by Linda -
Sumarlegar kjötsamlokur með spicy pestói
20 mínHér höfum við matarmiklar samlokur sem eru svo góðar. Brauðin eru fyrst smurð með chilí pestói sem er svolítið spicy og rosalega gott! Svo er sett nokkrar tegundir af kjötáleggi á samlokuna, skinka, pepperóní og stökkt beikon, ostur er svo lagður yfir kjötáleggið og samlokan sett opin inn í ofn til að rista brauðið og […]
Recipe by Linda -
Vanillubollakökur með kaffi og karamellu skyrsmjörkremi
1 klst og 30 mínHér höfum við æðislegar vanillu bollakökur með einstaklega ljúffengu kaffi og karamellu skyrsmjörkremi. Skyrsmjörkrem er náskylt rjómaostasmjörkremi, það er léttara og mýkra en venjulegt smjörkrem og þetta súra element í skyrinu kemur á móti sætunni í smjörkreminu og gerir það alveg ómótstæðilegt. Skyrsmjörkrem henta ekki í tveggjahæða kökur þar sem það er of mjúkt en […]
Recipe by Linda -
Sykurlausar og próteinríkar súkkulaðihjúpaðar grískt jógúrt íssmákökur
2 klstEf þið langar í góðan ís sem er á sama tíma hollur þá ert þú komin/nn á réttan stað. Þessi ís er aðallega úr grísku jógúrti, próteindufti og rjómasúkkulaði án viðbætts sykurs. Ég setti samt í uppskriftina smá sykurlaust síróp og vanilludropa þar sem próteinduft eru svo svakalega mismunandi, það er því vissara að smakka […]
Recipe by Linda -
Hindberja pavlovur
2 klstHér höfum við æðislegar litlar pavlovur sem bragðast dásamlega. Marengsinn er seigur og svolítið blautur að innan sem er algjörlega ómótstæðilega gott! Hindberja pavlovur 6 eggjahvítur 3,5 dl sykur 2 tsk kornsterkja (maizenamjöl) 1/8 tsk cream of tartar 2 tsk vanilludropar 2 tsk hvítt borðedik 500 ml rjómi St. Dalfour hindberjasulta 250 g hindber Fersk […]
Recipe by Linda -
Appelsínukryddlegið lamba t-bone með ljúffengu meðlæti
45 mínAppelsínukryddlegið lamba t-bone frá SS er eitthvað sem allir grillkjötsunnendur þurfa að prófa! Appelsínukryddlögurinn er einstaklega ljúffengur, hann gefur milt og ljúft sítrusbragð og er án allra rotvarnarefna. Kjötið sjálft er svakalega gott, mjúkt og bragðmikið. Ég bar lambakjötið fram með myntu pestó sem kom alveg ótrúlega skemmtilega út og passaði svo vel með appelsínukryddleginum. […]
Recipe by Linda -
Hvítlaukssmjörshjúpuð bleikja með ljúffengu meðlæti
40 mínHér höfum við einstaklega ljúffenga bleikju sem er bökuð innpökkuð með þykku hvítlaukssmjöri sem myndar svakalega góðan kryddhjúp á bleikjunni. Hún er svo borin fram með sítrónubökuðum aspas, kaldri hvítlaukssósu og kartöflusmælki. Þó svo að uppskriftin líti út fyrir að vera löng til að byrja með, þá sjáið þið fljótt þegar þið lesið uppskriftina að […]
Recipe by Linda -
Litríkt taco með djúsí ostahakki
20 mínHér höfum við einstaklega ljúffengt taco sem þú átt örugglega eftir að elska og öll fjölskyldan líka. Hakkið er virkilega djúsí þar sem kryddosturinn er bræddur saman við það, svona eins og í djúsí pappapítunum sem örugglega margir kannast við. Djúsí ostahakkið er svo toppað með ljúffengu mangó, fersku rauðkáli, granatepli, kóríander og ferskri lime […]
Recipe by Linda -
Matcha skyrsskál
Hér höfum við rosalega góða matcha skyrskál. Matcha er te sem er algjör ofurfæða. Matcha er rík uppspretta af andoxunarefnum og er allra meina bót. Ég verð þó að viðurkenna að mér finnst það ekkert rosalega bragðgott svona eitt og sér. Ég reyni að fá mér matcha te inn á milli, en mér finnst miklu […]
Recipe by Linda -
Rjómalagað kjúklinga og beikon tagliatelle
20 mínHér höfum við einstaklega góðan pastarétt sem þú mátt alls ekki láta fram hjá þér fara. Hann samanstendur af stökku beikoni, sveppum, kjúkling og ljúffengri hvítlauksrjómasósu. Ég get trúað því að þessi réttur eigi eftir að slá í gegn hjá þér, að minnsta kosti slær hann alltaf í gegn hjá mér! Krakkarnir borða sjaldan jafn […]
Recipe by Linda -
Súkkulaðihjúpuð brownie með rice krispies toppi
1 1/2 klstHér höfum við alveg einstaklega góða brownie köku sem er með rice krispies toppi og hjúðum í dásamlegum súkkulaðihjúp. Þessi kaka fékk alveg einstaklega mikið lof þegar ég bauð upp á hana um daginn, meira að segja fékk hún hrós frá einum sem finnst kökur almennt ekki góðar og verður það að teljast mikið afrek. […]
Recipe by Linda -
Veisluréttir – krakkavænir réttir – lúxus snittur með hátiðarpate, kokteilpylsur í brauði, sænskar kjötbollur og fleira
Við smelltum í smá boð hér heima um daginn og buðum upp á allskonar flottar en einfaldar veitingar. Nú er sá tími árs þar sem mikið er af veislum framundan og því fannst mér kjörið að koma með nokkrar hugmyndir fyrir veisluna. Við buðum upp á snittur með ljúffengri hátíðarpate, kjötbollur í súrsæti sósu, kokteilpylsur […]
Recipe by Linda -
Vegan grænmetisvefjur
15 mínHér höfum við ljúffengar grænmetisvefjur með próteinríkum ristuðum kjúklingabaunum og grænmeti í hollri og góðri mangó-karrý hafraskyrssósu. Sósuna má svo nota með fjölmörgum mat til dæmis grill mat, grilluðu grænmeti, á búddaskálina og margt fleira. Vegan grænmetisvefjur Vefjur 300 g kjúklingabaunir 1 msk taco kryddblanda 150 g hafraskyr lime & kókos frá Veru Örnudóttir 3 […]
Recipe by Linda -
Kryddaður kjúklingaréttur með sætum kartöflum
40 mínHér höfum við einstaklega ljúffengan kjúklingarétt guðdómlegri hvítlauksosta- rjómasósu, borinn fram með bökuðum sætkartöflu bitum og fersku salati. Þessi réttur er á vikumatseðli Einn, tveir og elda þessa vikuna ásamt fleiri réttum frá mér. Þú getur verslað hann núna inn á Einntveir.is og fengið hráefnin sent heim til þín. Skoðaðu með því að smella hér. Kryddaður […]
Recipe by Linda -
Heimagert granóla með sykurlausu súkkulaði
30 mínÞetta heimagerða granóla með sykurlausu súkkulaði er eitthvað allt annað gott! Það er æðislegt til dæmis ofan á acai smoothie skálina, ofan á skyrið eða bara hverju sem þér dettur í hug. Þetta granóla er stökkt og gott. Það inniheldur hafra, möndlur, kókosflögur, kakó og hörfræjum. Það er sætt með hlynsírópi sem stuðlar einnig að […]
Recipe by Linda -
Kraftmikið kjúklingasalat
25 mínHér höfum við æðislega gott og orkumikið kjúklingasalat sem er alveg stútfullt af hollustu. Maður byrjar á því að elda sætu kartöflurnar og sveppina, svo sker maður restina af innihaldsefnunum niður og blandar öllu saman í skál. Kryddar svo með chillí olíu (eða annari olíu ef maður fýlar ekki sterkt), salti og pipar og smá […]
Recipe by Linda -
Einfalda og ljúffenga ístertan hennar Fjólu
2 klstVið fengum svo æðislega ístertu heima hjá vinafólki okkar um daginn þegar við vorum í matarboði hjá þeim. Ég spurðist fyrir um uppskriftina en þá er þetta uppskrift sem mamma vinkonu minnar, hún Fjóla, hefur gert ótal sinnum frá því að vinkona mín var lítil. Ég fékk leyfi til þess að deila uppskriftinni með ykkur […]
Recipe by Linda -
Miso marineruð bleika með agúrkusalatssósu
1 klstHér höfum við virkilega bragðmikla og góða bleikju. Þetta er hollur og góður réttur sem tikkar í öll boxin hvað varðar góða næringu. Best er að útbúa marineringuna með svolitlum fyrirvara og leyfa bleikjunni að draga hana vel í sig. Ef þú nærð að láta bleikjuna liggja í marineringunni í klukkutíma þá er það mjög […]
Recipe by Linda -
Hollt bananasplitt
5 mínHér höfum við bananasplitt sem ég fæ mér reglulega í morgunmat. Það er afar hollt, inniheldur fullt af vítamínum, steinefnum, andoxunarefnum og öðru góðgæti. Það gefur mér góða orku á morgnanna til að takast á við daginn. Ég byrja á því að skera banana í tvennt og setja á disk. Svo set ég hafra skyr […]
Recipe by Linda